Sæl öll,
Árni heiti ég og er nýliði í þessu, lagði í mína fyrstu lögn í maí á þessu ári og er núna með þá fimmtu í gerjun. Þetta er dásamleg skemmtun (nema að þvo flöskur) og allt svo æðislega gott sem að maður gerir
Ég er í smálögnum, er með 10 lítra pott sem ég sýð í á eldavélinni heima. Til að ná sem bestri nýtni á pottinum þá meskja ég í c.a. 8,5 lítrum í pottinum og geri svo "dunk sparge" með 3,5-4,0 lítrum í fötu. Þetta gengur allavegana hjá mér en þetta er allt drekkanlegt
Nýtnin hjá mér hefur verið í kringum 65% sem er kannski ekkert gott en ég næ því ekki mikið ofar.
Brugghúsið fékk nafnið Ölvar, sem þýðir "sá sem fer vel með áfengi", og hefur framleitt eftirfarandi bjóra:
Nr.1 – Bastarður.........American IPA
Nr.2 – Glópagull..........American Pale Ale
Nr.3 – Djöfulgangur.....Kolsch
Nr.4 – ÞRENN-A..........American Amber Ale
Nr.5 – Öðlingur...........English IPA
Og svo eru margið aðrir i pípunum
- Framleiðslulínan
- 2013-07-23 20.47.27.jpg (669.81 KiB) Viewed 25713 times