Við erum komnir með Soul Food, Hafnargötu 28 undir áhugamanna daginn. Vínkjallarinn ætlar að vera með og kynna ný tæki sem Bernhard er að flytja inn og koma jafnvel danir frá
http://www.hjemmebryggeren.dk/ og
http://www.brewolution.com/. Áman sér ekki fært að vera með en ætlar að kynna sig að nafninu til í það minnsta og við vonum svo að Hrafnkell sjái sér fært að kynna Brew.is
Við ætlum svo að reyna að gefa smá smakk ef byrgðir leyfa og myndum mjög gjarnan vilja fá einhverja af hér af Fágun með okkur í lið í þeim efnum, eru einhverjir sem myndu vilja vera með okkur í að gefa smá smakk?
En á Hátíð bjórsins, bjórsmökkunin er komin vel á veg og koma laugardaginn 7 september;
- Bruggsmiðjan
Steðji
Víking
Ölgerðin
Við eigum enn eftir að heyra frá Ölvisholti, vonum að þeir sjái sér fært að vera með, eins Gæðingur Öl.
Við förum svo að selja miða á Midi.is vonandi á næstu dögum, mun miðin kosta 2600 kr.- (frítt inn auðvitað 6 september á áhugamanna daginn), spurning ef það er einhver áhugi hjá Fágun að mæta, þá má alveg semja um lægra miðaverð?
Við hefðum gert þetta frítt eins og í fyrsta skiptið sem við héldum hátíð, en þetta er farið að kosta allt saman (salur, auglýsingar og s.frv.), en EF það verður hagnaður af, þá verður annað hvort gert gott við gesti hátíðarinnar eða nýtt fyrir stærri, flottari hátíð á næsta ári, eða hreynlega fundið gott málefni og gefið í það
Skemmtilegt að segja frá því að, hátíðin er komin með merki (logo), hannað af listakonuni Örna Dögg Tómasdóttur.