Komið þið sæl,
Við erum 3 vinnufélagar sem erum nýbyrjaðir í þessu.
Erum í 104 Reykjavík og 200 Kópavogi.
Höfum verið að skoða mikið hér á spjallinu en ekkert spjallað fyrr en nú, lært margt af því að lesa hvað reyndari menn hér inni eru að prófa og gefa ráðleggingar. Hlökkum mikið til að prófa okkur áfram og munum hiklaust nýta okkur spjallborðið hér hjá Fágun.
Vill nýta tækifærið og hrósa þessu samfélagi, það er með eindæmum hvað allir virðast vera hjálpsamir og duglegir við að hvetja hvorn annan, alveg meiriháttar.