Ég ákvað að henda inn uppskriftinni af þessum IPA þar sem hann er að koma vel út.
Korn:
4 kg Pale Ale eða til að ná Original Gravity í 1.042 (sem sagt alger session bjór)
Humlar:
40 grömm Simcoe í FWH (bætt við eftir meskingu, fyrir skolun) -> gefur ca 70 IBU
40 grömm Simcoe í þurrhumlun 5 daga fyrir átöppun
Ger:
US-05 einn pakki af þurrgeri
Aðferð:
Meskjað við 63°C í 60 mín og skolað vel (ég notast við BIAB). Humlum bætt út í eftir að pokinn er hífður upp, áður en skolað er.
First Wort Humlun á skv. rannsókn minni á fyrirbærinu að gefa meiri smooth beiskjuáferð en 60mín viðbót myndi gefa. Það er talað um að humlarnir gefi 10% meira IBU frá sér en í rauninni sé skynjun okkar á þeim mun nær því að vera eins og ef þeim væri bætt út í við 20mín.
Eftir suðu er kælt niður í 18 gráður, virturinn hristur til að fá súrefni í hann, og síðan gerinu skellt út í.
Leyft að gerjast í 3 vikur við stofuhita. Humlum bætt út í 5 dögum fyrir átöppun.
Þessi er líklega þægilegur fyrir byrjendur, þar sem hann er svo einfaldur, en namminamm hvað hann er góður!