Hæ hæ
Ég er búinn að liggja hérna lengi í leynum og ákvað að setja inn smá um mig svona af því það er svo gaman að sjá eitthvað nýtt í hádegishléinu (alltaf gaman að sjá gula kassa hérna á spjallinu).
Ég kom mér upp BIAB græjum að hætti rdavidsson en sá fjörkálfur kynnti mig fyrir þessu skemmtilega áhugamáli.
Svo er stirplate búið að bætast við og sous vide ásamt counterflow chiller í smíðum.
Fyrsta lögn var Bee Cave. Það tókst að græja það en meskihitinn var alltof hár af því ég autotune-aði ekki. Svo klikkaði eitthvað með humlana og því fékk ég dísætan bjór sem var bara ekkert spes. Hann fór þó fljótt í gjafir og smakkprófanir og þær fáu flöskur sem eftir eru að verða betri og betri.
Næst var það brúðkaupsölið sem heppnaðist þeim mun betur og hefur vakið mikla lukku meðal smakkara.
Það reyndist líka örlítið of sætt en það var eflaust af því ég pitchaði 1 gerpakka beint út í 30 l. Hrafnkell varaði mig við en ég var bara handviss um að gerið fjölgaði sér nóg og þetta yrði ekkert mál. Las svo meira um þetta og komst að þeirri niðurstöðu að ég hlusta á Hrafnkel héðan í frá.
Núna er hafraporter að gerjast. Fer á flöskur um helgina og ef hann reynist líka of sætur þá kalla ég brugghúsið Sælgætisgerðina!