Þetta er flott! Hvar fékkstu hræripinnann sjálfan?
Ég fór að þínu frumkvæði og rölti út í Íhluti í dag. Keypti þar stilliviðnámsgaur, on-off takka og segla. Hafði fengið (tóman) vindlakassa gefins í Drekanum sem ég tileinkaði í þetta hlutverk. Gömul tölvuvifta og smotterí úr byko. Hér eru myndir:
helgibelgi wrote:Þetta er flott! Hvar fékkstu hræripinnann sjálfan?
Ég fór að þínu frumkvæði og rölti út í Íhluti í dag. Keypti þar stilliviðnámsgaur, on-off takka og segla. Hafði fengið (tóman) vindlakassa gefins í Drekanum sem ég tileinkaði í þetta hlutverk. Gömul tölvuvifta og smotterí úr byko. Hér eru myndir:
Flottur kassi Ég keypti flösku og segulhrærurnar hjá http://www.cetus.is" onclick="window.open(this.href);return false;
Það var reyndar bara hægt að fá 10stk í pakka, en við vorum 3 saman þannig að við skiptum bara kostnaðinum á milli okkar..
Í gerjun: Dubbel
Á flöskum:
Á kút: Saison, Sænski IPA, Hveitibock
Á næstunni: Westvleteren 12
Ég varð að prófa þetta líka. Ég átti trékassa með loki sem er dálítið stór. Ég fékk því þá hugmynd að búa til ferðaútgáfu af stir plate. Allt fer innan í kassann þegar hann er ekki í notkun. Það stendur ekkert útúr honum nema hausar af 4 boltum sem halda viftunni. Þeir afmarka líka plássið sem glerið fer ofan á, akkúrat passlegt fyrir 1 lítra flösku. Þegar hann er í notkun er stjórnplatan sett í samband utaná og straumbreytirinn tengdur þar við. Það er enginn rofi því slökkt er einfaldlega með því að taka stjórnplötuna aftur úr sambandi. Ég er með 220 ohm stilliviðnám og fann svo nokkur önnur viðnám í skúffunni sem ég hliðtengi til að fá 50 ohm. 50 ohm er sem sagt minnsta viðnám sem gefur mestan hraða. Einfalt og gott!
Attachments
Hér er græjan í ferðaham
IMG_1838.jpg (46.16 KiB) Viewed 11645 times
Allir hlutirnir eru innan í kassanum
IMG_1839.jpg (48.05 KiB) Viewed 11645 times
Hér sést stjórnplatan að neðan og innstungurnar á hliðinni á kassanum
IMG_1843.jpg (47.53 KiB) Viewed 11645 times
Stjórnplatan komin á sinn stað og straumbreytirinn tengdur við
Ég uppfærði þetta hjá mér og setti betri stýringu á hana. Úfærsluna fékk ég hjá stirstarters.com. Mjög einfalt: einn regulator, stilliviðnám, þéttir og viðnám, keypt í Íhlutum á nokkra hundrað kalla. Ég finn mun á því hvernig hún er þýðari og ég hef betri stjórn á hraðanum eftir þessa breytingu.