Ég þori varla að opna strax en mér sýndist ég sjá skán í gegnum plastið áður en ég fór eitthvað að hrista fötuna ofan á bolta (þegar ég byrjaði að panikka).
Lokið var vel sett á en aftur á móti var eins og vatnslásinn ýttist upp (samt ekki upp úr, ég kom bara stundum að honum þar sem hann var farinn að halla og þá reyndi ég að ýta honum eins mikið niður og ég þorði án þess að brjóta vatnslásinn). Kannski ætti ég að vera óhræddari við að þrýsta vatnslásinum ofan í túðuna.
Ég var búinn að kæla virtinn niður í 23.4° (í einn og hálfan sólarhring). Ég setti aftur á móti gerið út í beint úr kælinum (geymdi það í kæli því mér sýndist Hrafnkell geyma það þannig). Ég stráði því bara yfir froðuna sem myndaðist á virtinum eftir að ég hellti yfir í gerjunarfötuna og lokaði svo fötunni og lét hana vera þannig.
Ætli ég mæli þetta ekki núna í dag í staðinn fyrir á morgun svo ég missi ekki svefn af áhyggjum í nótt
Takk fyrir ábendingarnar og góða skemmtun á morgun (þeir sem fara)!