Já ég ætla að gera starter, finnst bara svo spes að framleiðandinn segi 20L @ 1.060, en það miðast þá sennilega við mun hærra gerjunarhitastig.gunnarolis wrote:Það er alveg 100% ekki nóg að setja 1 gerpakka í 20 lítra af lager. Notaðu Mr. Malty töluna og mundu að gera ráð fyrir aldri gerpakkans.
Já, ég sýð einmitt alla bjóra með pilsner malti í 90 mín, hef reyndar ekki samanburðinn á 60 og 90 mín suðu bjórum..helgibelgi wrote:Ég held að þú þyrftir líka að sjóða aðeins lengur vegna pilsner maltsins útaf DMS. (nevermind, sá að þetta stendur í uppskriftinni)
Er hann ekkert þurrhumlaður líka þessi eða hvað? Væri kannski skemmtilegt að gera það.
Gangi þér vel annars!
Ég er alls enginn sérfræðingur en ég var að velta þessu fyrir mér fyrir ekki löngu síðan og rakst á einhvern halda því fram að stirplate þýddi stöðugt súrefnis infusion í starterinn sem ætti að skila hámarks fjölgun gerlana, hvort það var rétt hjá viðkomandi get ég hinsvegar ekki fullyrt því ég hef ekki kynnt mér hegðunarmynstur þessara vina okkar nógu vel.rdavidsson wrote:Ég þarf að fara að græja mér Erlenmeyer flösku og DME, er nauðsynlegt að smíða sér svona stirplate eða er nóg að láta þetta bara liggja í um 48 tíma fyrir bruggun? Er hægt að stytta þennan tíma með stirplate?
Já, þar sem ég er ekki með stirplate hef ég gert þetta, nota reyndar glæran 2 lítra growler þar sem ég á ekki erlenmeyer. Virkar alveg ágætlega, hef þetta við hliðiná ískápnum og bið heimilsmenn að hrista þegar þeir fara þangað.helgibelgi wrote:Stirplate er best held ég, en þú getur prófað að láta flöskuna liggja á stað sem þú átt leið hjá oft. Í hvert sinn sem þú ferð fram hjá borgarðu "toll" og hristir aðeins upp í vökvanum. Hef séð að fólk er að gera þetta. Á víst að koma smá súrefni í vökvann.
Ég fór áðan og keypti mér 2.000ml Erlenmeyer flösku og stirbar, ætli maður verði ekki að splæsa í stirplate líka fyrst maður er byrjaðir, það verður verkefni helgarinna að græja hanagm- wrote:Já, þar sem ég er ekki með stirplate hef ég gert þetta, nota reyndar glæran 2 lítra growler þar sem ég á ekki erlenmeyer. Virkar alveg ágætlega, hef þetta við hliðiná ískápnum og bið heimilsmenn að hrista þegar þeir fara þangað.helgibelgi wrote:Stirplate er best held ég, en þú getur prófað að láta flöskuna liggja á stað sem þú átt leið hjá oft. Í hvert sinn sem þú ferð fram hjá borgarðu "toll" og hristir aðeins upp í vökvanum. Hef séð að fólk er að gera þetta. Á víst að koma smá súrefni í vökvann.
Svo er sterkur leikur að taka frá 1-2 lítra af virti í næstu bruggun.. Þá á maður alltaf í starterrdavidsson wrote:Svo í staðinn fyrir að kaupa rándýrt DME þá ætla ég bara að meskja um 0,5kg af pilsner malti á eldavélinni heima og nota það sem starter.
Ég gerði það í síðstu bruggun, en það var frekar dökkt öl, tími ekki að eyðileggja tjékkan með þvíhrafnkell wrote:Svo er sterkur leikur að taka frá 1-2 lítra af virti í næstu bruggun.. Þá á maður alltaf í starterrdavidsson wrote:Svo í staðinn fyrir að kaupa rándýrt DME þá ætla ég bara að meskja um 0,5kg af pilsner malti á eldavélinni heima og nota það sem starter.
Decantar bara starterinn, maður vill bara gerið, ekki allan virtinn úr starternum. Kæla starterinn niður, láta gerið falla, hella virtinum ofan af því og pitcha svo gerinu.rdavidsson wrote:Ég gerði það í síðstu bruggun, en það var frekar dökkt öl, tími ekki að eyðileggja tjékkan með því
Ég malaði 0,5kg á pilsner áðan og ætla bara að meskja það í fína sous vide pottinum mínum. Má ekki alllveg geyma virtinn í nokkkra daga í ísskápnum fyrir notkun?