Nú líður að sjálfu keppniskvöldi Fágunar. Hátíðin nú í ár verður stærri en nokkru sinni (m.a. í lítrum talin) og engin spurning að allir félagsmenn og velunnarar ættu að láta sjá sig. Líkt og í fyrr hefst kvöldið á kvöldverði en eins og mánudagsfundagestir vita þá er frábært eldhús á KEX sem hefur unnið ötullega að pörun matar og bjórs. Boðið verður upp á steiktan og gljáðan kalkúnn með sveppum, beikoni go kartöflumús (2500 kr.) en matargestir þurfa að skrá sig sjá skráningarform með leiðbeiningum
https://docs.google.com/spreadsheet/vie ... ZVlsY1E6MA.
Dagskrá kvöldins verður einföld, kvöldverður hefst kl 19:00 og boðið verður upp á bjór sem brugghús gefa af tilefninu, kl 20:30 eru allir þeir sem
ekki kusu að koma í kvöldverðinn boðnir veldkomnir á staðinn. Vikingur Kristjánsson mun stýra veislunni og skemmta gestum. Dagskrá kvöldins lýkur á því að dómnefnd kynnir niðurstöður keppninnar (fyrr en síðast). Eins og alltaf eru allir félagsmenn og meðlimir á spljallinu boðnir velkomnir, jafnt þeir sem kusu að taka þátt í keppnin sem og aðrir. Frjálst er að mæta með gesti en mikilvægt að vita að þeir sem ekki hafa greitt félagsgjöld þurfa að greiða 1500 kr. aðgangseyri (aðeins reiðufé).
Dagskráin er sem hér segir:
19:00 Kvöldið hefst á því að opnað er fyrir bjórdælurnar. Í kjölfarið verður kvöldverður borin fram. Að þessu sinni Boðið verður upp á steiktan og gljáðan kalkúnn með sveppum, beikoni go kartöflumús á aðeins 2500 kr. Sjá frekari leiðbeiningar á skráningarformi
https://docs.google.com/spreadsheet/vie ... ZVlsY1E6MA
20:30 Opið fyrir alla
22:00 Úrslit tilkynnt með pompi og pragt*
23:00 Húsið lokar og gleðin færist annað
* Dómnefndin mun hefja störf mun fyrr en í fyrra og því munu niðurstöður liggja fyrir fyrr og hvað eru mörg fyrr í því?