Sú hugmynd hefur verið að hringla í kollinum á mér í nokkurn tíma að prófa að leggja í mjöð og þegar ég rambaði fyrir tilviljun á að Wyeast eru með ekki minna en 2 tegundir af spes mjaðargeri, þá var sú ákvörðun tekin að stefna á skemmtilegheit næst þegar verður pöntun, þá er það spurning um uppskrift, mitt plan hafði verið að gera littla lögun (5L) en þar sem þessir Wyeast pakkar eru yfirleitt passlegir í 20L er ég jafnvel að hugsa um að fleygja í 3-4 littlar uppskriftir.
nr.1
4L epplasafi
1kg hunang
lúka af rúsínum
nr.2
sama og nr.1 nema eikað
nr. 3
1kg jarðaber
1kg hunang
lúka af rúsínum
vatn uppí 5L
nr. 4
1kg hunang
lúka af rúsínum
Kannski appalsínusafi nema eitthvað ennþá undarlegra droppi inní kollinn á mér.
Allt basicly sama uppskriftin í raun en langaði að sjá hvernig mismunandi ávextir kæmu út (og prófa eikun)
Ráðleggingar og athugasemdir velkomnar, sérstaklega ef ég er að plana einhverja algjöra vitleysu
Allt fínar og góðar hugmyndir, nema þetta með appelsínusafann. Rúsínurnar eru líka mjög góðar sem svolítil næring fyrir gerið.
Að gerja appelsínusafa er víst ekki mjög góð hugmynd. Rámar í að hafa lesið eitthvað um ælulykt- og bragð af slíkum tilraunum. Ef það var þá svo fínt orðað, á annað borð.
Ég myndi jafnvel prófa bara nokkuð dæmigerða mjaðaruppskrift: 1 hluti hunangs á móti hverjum 4 af vatni, og krumla af rúsínum með.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Ég var að hugsa um að gera svipað.
Laga beisik mjöð í primary, og splitta í tvo litla carboya í secondary.
Hafa annan bara plein, og hinn með sítrónuberki, vanillu og sítrónutimian.
Þetta plan fékk bremsuna þegar ég braut stóra carboyinn í uppþvottaslysi.
Ég pantaði Sweet Mead (4184) frá wyeast núna í síðustu hóppöntun, ætla að skella í þessa uppskrift: http://www.homebrewtalk.com/f80/cherry- ... ad-245547/" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;
Tek undir með Sigurði Idle, það er hægt að finna margar ástæður af hverju appelsínusafi er ekki sniðugur
Ég tók einmitt einhverja pakka auka af mjaðargeri til að prófa sjálfur. Ekki það að ég hafi nokkurntíman smakkað bragðgóðan mjöð, en það er gaman að prófa svona í litlum skömmtum
hrafnkell wrote:Tek undir með Sigurði Idle, það er hægt að finna margar ástæður af hverju appelsínusafi er ekki sniðugur
Ég tók einmitt einhverja pakka auka af mjaðargeri til að prófa sjálfur. Ekki það að ég hafi nokkurntíman smakkað bragðgóðan mjöð, en það er gaman að prófa svona í litlum skömmtum
Ef þú hefur aldrei smakkað bragðgóðan mjöð, þá mæli ég hiklaust með braggot. Það er einskonar samblanda öls og mjaðar (GIYF). Frumraun mín í gerjun var einmitt braggot (fyrir forvitnis sakir), og án efa það besta sem ég hef nokkurn tímann bruggað.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Idle wrote:
Ef þú hefur aldrei smakkað bragðgóðan mjöð, þá mæli ég hiklaust með braggot. Það er einskonar samblanda öls og mjaðar (GIYF). Frumraun mín í gerjun var einmitt braggot (fyrir forvitnis sakir), og án efa það besta sem ég hef nokkurn tímann bruggað.
Rétt að taka það fram að ég hef svosem ekki smakkað hann margan þannig að ég er 100% opinn fyrir þessu