Það er hægt að panta af Northern Brewer ef maður notar shipping þjónustu eins og Shipito.com. Það borgar sig hinsvegar ekki fyrir korn og humla að mínu mati. Ég kaupi (eins og flestir hér) allt hráefni af brew.is enda er þar góð þjónusta og verð.
Ég hef hinsvegar pantað mikið af bruggbúnaði af morebeer.com. Þeir senda til Íslands og eru með fína þjónustu.
Jói
Reynir wrote:Ég hef voða fátt að segja annað en að ég er 20 ára nemi sem hefur gaman af því að búa til hluti og nú er það brugg.
Er búinn að setja í eina lögn en það var beecave, hann heppnaðist bara príðilega og vakti nokkra lukku meðal partígesta núna um helgina. svo er ég að leika mér með sider.
Næst á dagskrá er það brown ale.