Sælir Veiga heiti ég og ættuð úr Hafnarfirði þó ég búi þar ekki í dag.
Ég hef svosem alltaf haft áhuga á bruggun og þó sérstaklega á léttvíni. Ég meira að segja gaf pabba bruggsett þegar ég var aðeins 17 ára gömul og varla farin að smakka það sjálf. Síðan þá hefur runnið mikið til sjávar og er ég loks að fara að láta gamla drauminn rætast og byrja að brugga. Er enn bara að læra og lesa mér til, ætla svo fljótlega að prufa hunangsvín eða hvítvín. Er með græjur að láni í bili en ætla svo að splæsa í eigin í enda sumars þegar ég kem heim frá Portugal. En við eigum land og litla vínekru þar sem tengdapabbi minn sér um. Verst það sé ekki hægt að taka neitt með heim. Allavega hér er ég skál