Page 1 of 1
Flöskur
Posted: 9. Aug 2009 00:54
by valurkris
Daginn, mig langaði að athuga hvaða flöskur þið eruð að nota. Sjálfur á ég eftir að brugga en er búin að vera duglegur að kaupa mér bjór í gleri til að safna flöskum og um tíma keypti ég mér soldið af Moosehead til að sötra.
En málið er að mér finnst vera svo þunnt gler í Moosehead flöskunum, er það eithvað sem að ég á að hafa áhyggjur af eða bara að nota þær
Kv. Valur
Re: Flöskur
Posted: 9. Aug 2009 08:48
by arnilong
Það er allt í fína að nota þær svo framarlega sem þú ert ekki að setja mikinn þrýsting á flöskurnar, sumir belgískir stílar og hveitibjórar innihalda mikið koldíoxíð og þá eru þessar flöskur líklega ekki nógu sterkar.
Re: Flöskur
Posted: 9. Aug 2009 08:54
by arnilong
Flöskurnar sem ég er ánægður með eru undan þýsku hveitibjórunum, Zywiek, Leffe og Orval, miðarnir losna líka auðveldlega af þeim.
Re: Flöskur
Posted: 9. Aug 2009 19:48
by Andri
Ég er svakalega hrifinn af Thule, drekk hann í massavís í stóru flöskunum. Held að ég sé kominn með flöskur fyrir einhverja 30 lítra. Þær eru þykkar og ekkert mál að setja tappana á, mér fannst pilsner urquell flöskurnar leiðilegar með tappana..
Re: Flöskur
Posted: 9. Aug 2009 20:22
by Hjalti
Ég fékk flöskur hjá Ölvisholti og þær eru að duga mér ágætlega. Drekk svo mikið af skjálfta og kalda þannig að flöskurnar líta alar eins út eginlega.
Ölvisholt eru frekar duglegir að gefa af sér þegar maður biður fallega þannig að það er nú bara spurning um að hringja í þá félagana og sjá hvað þeir geta boðið þér.
Re: Flöskur
Posted: 9. Aug 2009 20:44
by halldor
Ég nota bara brúnar 330 ml flöskur, megnið af þessu er skjálfti, Leffe, La Trappe og fleira gúmmelaði
Miðarnir á Skjálfta eru orðnir MJÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖG leiðinlegir... eiginlega vonlaust að ná þeim af með góðum hætti, en það þýðir samt ekki að maður eigi ekki að kaupa Skjálfta.
Re: Flöskur
Posted: 9. Aug 2009 20:51
by Hjalti
Já, ég tók eftir þessu núna. Það var eftir silfrað dót undir miðunum sem ég var að fjarlægja af skjálfta.... Ekki nógu gott! Stilla miðavélina aftur strákar!

Re: Flöskur
Posted: 3. Sep 2009 11:16
by kristfin
ég talaði við jón í ölvisholti. þar getur maður fengið óhreinar flöskur, 500lm og 330ml, á 12kr stykkið ef maður er ekki nógu duglegur að safna með drykkju.
ég losa límmiðana með því að setja flöskurnar í heitt vatn með uppþvottavélasápu í baðkarinu, og þá eru þeir svo gott sem dottnir af daginn eftir. lítur líka gáfulega út í baðinu