Ég heiti Brynjar og er byrjandi í brugginu. Ákvað að sleppa extract brugginu og hella mér bara strax í all-grain. Það var vinnufélagi minn hann Kalli, sem er meðlimur í fágun, sem kveikti í áhuga mínum á að brugga. Ég og tveir félagar mínir lögðum okkar fyrstu lögn fyrir áramót og varð Beecave fyrir valinu. Svona eftir bruggun og maður fór að lesa sér meira til þá sá maður hvar maður hefði gert smámistök hér og þar. Það var nú ekkert alvarlegt og smakkaðist hann alveg ágætlega, ég myndi lýsa honum sem þannig að hægt sé að slafra honum í sig ef maður væri að fara á fyllerí
með virðingu,
Brynjar