Mig langar að kanna hvort það séu fleiri en ég og Feðgarnir sem erum í bjórgerðinni hérna á Suðurnesjum.
Hefði gaman af því að heyra í fleirum og jafnvel hittast og geta svo saman sótt hina ýmsu viðburði sem Fágun stendur fyrir. Eins og fundi og heimsóknir í brugghús. Getum jafnvel hist sér og aðstoðað hvor aðra og leiðbeint nýliðum hér á svæðinu.
Sendið mér póst eða skrifið eitthvað á þennan þráð ef þið hafið áhuga.
Er að vonast til að við séum fleiri hérna og gætum hjálpast að við að efla félagið okkar.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
Þarf endilega að fara að reka annan til þess að skrá sig hérna, hress strákur sem er að vinna með mér.
Hugmyndirnar sem við ræddum í Borg voru spennandi, verðum endilega að koma þeim í gegn og taka hittng hérna fyrir sunnan.
Ég veit að við feðgarnir værum alveg til bjóða heim næst þegar við bruggum. Það gæti alveg eins verið næstu helgi. Væri gaman að sýna hvað við erum að gera og fá punkta frá öðrum.
Jámm við erum víst nokkrir, hérna á suðurnesjunum ... ég bý í Njarðvík og brugga þar með félaga mínum... en jámm það er alveg kominn tími á að maður láti sjá sig