Er að drekka þennan núna en keypti hann í Denver um daginn. IPA bjórar eru í mikillri sókn í USA og ég hef ekki tölu á því hvað ég smakkaði marga. Eigandi þessa brugghúss hann Sam Calagione er snillingur í því að markaðsetja sig og brugghúsið. Ég hef séð þætti um hans brugghús og hann virðist koma fyrir í öllum heimildarmyndum um bjór sem gerðar eru í dag. Veit að ekki allir eru sáttir við hann.
En the bottom line er alltaf, hvernig er bjórinn?
Þessi bjór er mjög góður. Margir IPA bjórar sem ég hef smakkað eru soldið ýktir en það er virkilega flott jafnægi í þessum bjór. Skemmtilegt humlabragð, alls ekki of mikið og bara frábær fylling.
Mun leita af þessum bjór næst þegar ég fer til USA. Á núna tvær flöskur af honum sem ég mun spara mér og opna við hátíðleg tækifæri.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
Já þessi er mjög skemmtilegur. Ég keypti mér kippu af þessum þegar ég var síðast í USA og naut hvers einasta sopa.
Annar sem ég drakk stíft í USA var Sierra Nevada Torpedo... hann er geggjaður og að mínu mati betri en 60, 90 og 120 mín IPA frá Dogfish Head.
halldor wrote:Já þessi er mjög skemmtilegur. Ég keypti mér kippu af þessum þegar ég var síðast í USA og naut hvers einasta sopa.

120 er ekki sambærilegur í þessum samanburði..
ekki beint session bjór
90 min IPA er 9,0 % abv., ekki beint session bjór heldur
kanski helst hægt að bera Sierra torpedo við 60 min. 120 mín er svo allt annar handleggur, 18% kvikindi (frábær að mínu mati) Engu að síður, allt geggjaðir bjórar sem hafa verið nefndir hér
Hef einu sinni smakkað dogfish head 90 mín og var mjög hrifinn.
Þessi bjór er einn af þeim betri IPA sem ég hef smakkað. Maður getur farið í brugghúsið hans í Delaware og keypt sér "growler" með þessum eða öðrum. Hef ekki gert það sjálfur en þekki fólk sem fer þangað reglulega. Og þessir growler kútar frá Dogfishhead eru glæsilegir til eignar. Annars ætla ég að prófa að brugga svona bjór, sjá http://www.homebrewtalk.com/f69/dogfish ... ne-260675/" onclick="window.open(this.href);return false;