Gott kvöld.
Gunnhildur heiti ég og er að byrja að prófa mig áfram í ostagerð
Ég er með nokkrar spurningar um þetta ferli.
Fyrst og fremst er ég að reyna að átta mig á því hvaða áhöld og hráefni ég þarf að nota við gerð á hvítmygluostum, eins og td Brie eða Camembert. Flott ef einhver gæti sett upp lista á því sem þið notið
Svo er ég að spá, ég hef góðan aðgang að ógerilsneyddri mjólk (bara beint úr kúnni eiginlega). Vitið þið til þess að það sé eitthvað betra eða verra að nota ógerilsneydda?
Síðasta spurning, hvað tekur það langan tíma frá því byrjað er að búa hann til og þar til hægt er að borða hann?