Færð ryðfrí net í öllum möskvastærðum í poulsen í skeifunni veit ég. Veit ekki hvar offi fékk sitt.garpur wrote:Lítur ansi vel út!
Má ég forvitnast hvar þú fékkst meski netið?
kv.
Bjarki
Takk, kíki á þá í Poulsen!hrafnkell wrote:Færð ryðfrí net í öllum möskvastærðum í poulsen í skeifunni veit ég. Veit ekki hvar offi fékk sitt.garpur wrote:Lítur ansi vel út!
Má ég forvitnast hvar þú fékkst meski netið?
kv.
Bjarki
Ég þrjóskaðist reyndar við og hafði kæliplötuna mína inni í kassanum, en setti stóra örgjörvaviftu alllveg við kæliplötuna. Viftan dregur kalt loft inn, blæs því á kæliplötuna og síða beint út úr kassanum, svínvirkar. Kæliplatan er allltaf ísköld þó svo að elementið sé búið að vera ON í langan tíma eins og í suðunni.hrafnkell wrote:Alveg bannað að láta SSR vera inní kassanum - Kæliplatan *verður* að vera fyrir utan kassann. Í sumum tilfellum þarf að setja viftu á hana. Ef SSR hitnar of mikið þá festist það oftast lokað (straumur á).
Ertu búinn að keyra autotune? Þá ætti stýringin ekki að skjóta svona yfir.offi wrote:Ég ákvað að taka enga sénsa og setti viftu á boxið.
Nú er kæliplatan aftaná bara rétt volg og vonandi engin hætta á bráðnun. Ég er búinn að halda meskihita í klukkutíma, en eins og sést á hitastýringunni, þá er smá munur á SV og PV... það seinna er um 3-4 gráðum hærra og hitamælir sem ég er með í til viðbótar sýnir svo 1° meira en PV. Reyndar hefur þetta dottið aðeins niður núna og munar bara 1° á SV og PV... þetta jafnar sig líklega út!
Já svona kerfi eru venjulega ekki 100% frá byrjun, maður þarf að snurfusa þetta aðeins til Þessvegna er mikilvægt að vera ekki sí skiptandi um kerfi, því þá er maður alltaf í einhverjum breytingum og nær ekki að negla bruggunina.offi wrote:Setti aukastaf og autotunaði og þetta var sem hugur manns. Hins vegar fór það eins og mig grunaði að netið í meskifötunni er of þéttriðið. Það fór að þéttast eftir ca. 20 mín í meskingunni og ég þurfti dálítið að standa yfir þessu og "skrapa" hliðarnar. Missti fyrir vikið dálítið korn út úr á stundum, en dælan skilaði því nú að mestu aftur upp í fötuna. Þá er bara að selja hinn handlegginn og skipta út netinu!
En mín fyrsta lögun, Tri-Centennial IPA, er komin í gang og það verður bara gaman að sníða vankantana af þessu hægt og rólega.
offi wrote:Búinn að vera smá fjarverandi, svo ég náði ekki meskispjallinu. En já, það var Poulsen sem seldi mér netið... og það var ekkert endilega svo ódýrt. 13 þúsund kall metrinn.
Ég fékk annars fullt af stuffi frá USA, svo ég hef haft nóg að sýsla. Ísskápurinn minn er að taka á sig mynd. Ég reikna með að klára stjórnboxið fyrir pottinn núna um helgina.
Ég reiknaði nýtnina á um 78% í stoutinum í gær. Ætla að skoða þetta aftur og betur í Bee Cave.hrafnkell wrote:Gaman að þessu. Hvaða nýtni hefurðu verið að fá í græjunum?
Ég gerði bara grind úr flatstáli og öxuljárni, vafði netinu utanum og hnoðaði það fast. Setti svo silikon þar sem allar "rákirnar" eru, svo kornið smjúgi ekki á bak við neitt. Sagaði síðan raufar ofan í pottinn, svo það væri hægt að setja lokið á. Netið er 30 mesh og er enn í það fínasta. Ég hugsa að 20 mesh gæti alveg verið málið.gugguson wrote:Líst vel á þetta net. Kom það svona tilbúið eða þurftir þú að setja það saman? Ætlar þú ekki að vera með poka í því, þ.e. er það nógu fínt til að halda korninu? Þessi stöng og rákirnar í pottinn, bættir þú því við og sagaðir í pottinn?
Maður stingur sig stundum smá á þessu, en það er bara ofaná fötunni. Endarnir á netinu eru hnoðaðir á einn póstinn ap utanverðu og kornið er því almennt ekki í snertingu við endana. Svo lokaði ég öllu sem ég gat lokað með þessu stöffi: http://www.einara.is/?item=80&v=item" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;hrafnkell wrote:Sniðugt að hnoða þetta á... Eru "endarnir" á netinu ekkert með einhver leiðindi við þig? Stinga putta, fast korn í þeim og svona? Ertu búinn að skoða hvort vatnið sé að flæða í gegnum kornið eða hvort það sé mikið að fara framhjá? Líklega nóg í gegnum kornið fyrst að nýtnin er þetta góð allavega.
Hvað þýðir 30 mesh annars.... 30 göt á fertommu eða eitthvað svoleiðis? Það eru oft sett 1.5-2mm göt í falska botna, þannig að net í sambærilegri möskvastærð ætti að vera í lagi.