Page 1 of 1
Star San á íslandi?
Posted: 22. Sep 2012 18:57
by gr33n
Titillinn segir nær allt. Er einhversstaðar hægt að fá þetta undraefni hér á klakanum? Hef ekki séð þetta í neinum af bruggverslununum (Brew, áman, vínkjallarinn), sá þetta ekki á frigg/mjöll síðunni.
Hafa menn/konur bara verið að panta þetta að utan eða? Og ef svo, hefur ekki verið neitt mál að fá þetta í gegn?
Re: Star San á íslandi?
Posted: 22. Sep 2012 20:40
by hrafnkell
Einhverjir hafa pantað þetta af morebeer, hefur orðið ansi dýrt, en komist í gegnum tollinn. Ég hef talað við efnafræðingana hjá kemi, mjöllfrigg og einhverjum öðrum aðila. Þeir eiga ekki starsan en mæla með fosfórsýru. Hún er bara svo hættuleg í meðhöndlun að ég held mig við joðófórinn og klórsódann. Það eru líka það ódýr efni að það er stór kostur

Starsan (amk í gegnum morebeer) hefur verið amk 12x dýrara (miðað við rúmmál) en joðófórinn.
Re: Star San á íslandi?
Posted: 22. Sep 2012 20:47
by gr33n
En er hægt að nota joðforfórið svipað og starsan... s.s. spreyja bara á það sem maður er við það að fara að nota.
ég er aðallega að spá í t.d. ef maður vill bæta eitthversskonar te rétt fyrir átöppun (kaffi, súkkulaði... you name it), en þarf að sía það. Þá var pælingin að spreyja starsan í kaffifilter og hella í gegn.
Ekki það ég get svosum bara soðið fjölnota tepoka og hellt í gegnum hann.
Re: Star San á íslandi?
Posted: 22. Sep 2012 20:57
by hrafnkell
Það er hægt að nota joð eins, en það geymist ekki jafn lengi eftir að maður blandar.
Ég veit samt ekki með þessa kaffifilter pælingu hjá þér.. hvort sem það væri starsan eða jóð.
Re: Star San á íslandi?
Posted: 23. Sep 2012 15:40
by Gvarimoto
Ég panta star san frá UK 230gr brúsinn kostar um 5.000kr hingað kominn, og það er svo auðvelt að nota þetta og þrífa með þessu að það er algjörlega þess virði.
Er búinn með 1.5 oz á einhverjum 5-6 mánuðum, á ca 90% eftir í brúsanum svo þetta er að fara að duga mér næsta árið léttilega.