Hæ öll
Eins og fram kemur í fyrirsögninni, þá heiti ég Ófeigur, kallaður Offi. Þessa stundina er ég mest fyrir hressilega humlaða bjóra, en ég er líka alltaf hrifinn af bragðmiklum belgum. Og góðum stout. Og góðum lager. Og...!
Ég er að setja saman mínar fyrstu græjur til bjórgerðar. Ég verð með ryðfrítt í meskingu og suðu, og svo stefni ég á að sía bjórinn á kúta og flöskur.
Ég er að gæla við að nota Blichmann Beer Gun til að koma bjórnum kolsýrðum á flöskur. Mér var reyndar bent á að það borgi sig að tappa bjórnum á flöskur undir þrýstingi og á morebeer.com er græja til þess, (http://morebeer.com/view_product/11864/ ... tle_Filler" onclick="window.open(this.href);return false;), en mér sýnist vera talsvert seinlegra að nota hana. Hafið þið reynslu af þessu?
Hvað síunina snertir, þá ætla ég að dæla bjórnum beint úr gerjunarfötunni í kútinn, með tvö síuhús sem milliliði, annað með 5 micron síu og hitt með 1 micron. Ábendingar væru vel þegnar, ef þið sjáið mig stefna í vandræði með þetta!
Ég ætla svo að dútla mér við að smíða kældan skáp utan um kútana í vetur.
Ég hlakka til komandi bjórgerðar með ykkur fágaða fólkinu!