Page 1 of 1
Verðlisti á malti og humlum frá ÖB
Posted: 21. Jul 2009 13:42
by Valli
Nú erum við komnir með vefverslun á malti og humlum. Verslunin er inná heimasíðunni okkar:
http://www.brugghus.is" onclick="window.open(this.href);return false;
Þarna verður verðlistinn framvegis. Vonum að þetta verði öllum til gagns og gaman.
Re: Verðlisti á malti og humlum frá ÖB
Posted: 21. Jul 2009 20:46
by Andri
ég væri alveg til í að eiga kíló af humlum inni í frysti *slef*
Ég vill 100gr af humlunum :
Hallertau
Fuggles
Cascade
Hvar nálgast ég þetta og inná hvaða reikning greiði ég?
Re: Verðlisti á malti og humlum frá ÖB
Posted: 2. Sep 2009 10:56
by Oli
Ég átti leið á Selfoss um síðustu helgi, pantaði slatta af korni og humlum en svo komst ég að því að það yrði allt lokað í Ölvisholti vegna starfsmannaveislu, en Jón og co voru ekki lengi að redda því og skutluðust með dótið á Selfoss fyrir mig. Takk fyrir mig.
Einhversstaðar sá ég að úrvalið væri meira en gefið er til kynna í þessum þráð, spurning hvort við fáum update á næstunni?

Re: Verðlisti á malti og humlum frá ÖB
Posted: 3. Mar 2010 09:30
by sigurdur
Flott framtak hjá ykkur með vefverslunina Valli.
Eina sem að ég hef út á hana að setja er sjálfgefið land þegar maður gengur frá pöntun er ekki ísland

Re: Verðlisti á malti og humlum frá ÖB
Posted: 8. Mar 2010 15:45
by Valli
Góðar og slæmar fréttir úr Ölvisholti.
Góðu fyrst. Við erum með nokkra poka af speciality malti sem við höfum ákveðið að bjóða ykkur. Vegna lítils magns mæli ég samt með að menn fari hóflega í pöntunum svo fleiri hafi möguleika á að prófa. Maltið sem um ræðir er:
Rye malt, Cararye, Wheat malt dark og Carawheat.
Slæmu fréttirnar eru þær að vegna óvenju mikillar framleiðslu vegna útflutnings og gríðarlegar aukningar í all grain bruggun hjá íslenskum heimabruggurum, þá er lagerstaðan orðin mjög lág fyrir nokkrar malt týpur og fyrirsjáanlegur skortur framundan.
Við reynum að uppfæra vefverslunina eins og við mögulega getum svo það sé hægt að fylgjast með malt framboðinu.
Re: Verðlisti á malti og humlum frá ÖB
Posted: 8. Mar 2010 16:53
by Eyvindur
Ætlið þið þá að selja þetta í minni einingum?
Re: Verðlisti á malti og humlum frá ÖB
Posted: 8. Mar 2010 22:32
by Andri
Valli wrote:Góðar og slæmar fréttir úr Ölvisholti.
Góðu fyrst. Við erum með nokkra poka af speciality malti sem við höfum ákveðið að bjóða ykkur. Vegna lítils magns mæli ég samt með að menn fari hóflega í pöntunum svo fleiri hafi möguleika á að prófa. Maltið sem um ræðir er:
Rye malt, Cararye, Wheat malt dark, Carawheat og örlítið af Vienna malt.
Slæmu fréttirnar eru þær að vegna óvenju mikillar framleiðslu vegna útflutnings og gríðarlegar aukningar í all grain bruggun hjá íslenskum heimabruggurum, þá er lagerstaðan orðin mjög lág fyrir nokkrar malt týpur og fyrirsjáanlegur skortur framundan.
Við reynum að uppfæra vefverslunina eins og við mögulega getum svo það sé hægt að fylgjast með malt framboðinu.
Skemmtilegt að heyra að þið séuð að auka framleiðsluna, leiðilegt að þið séuð að flytja bjórinn frá okkur.
1) Hversu alvarlegann skort erum við tala um? Vonandi enginn Skjálftaskortur.
2) Hvenær búist þið við næstu sendingu?
3) Munuð þið panta mikið umframmagn til að selja okkur?
4) Koma einhverjar skemtilegar tegundir í næstu sendingu?

Re: Verðlisti á malti og humlum frá ÖB
Posted: 8. Mar 2010 23:13
by Valli
Andri wrote:1) Hversu alvarlegann skort erum við tala um? Vonandi enginn Skjálftaskortur.
2) Hvenær búist þið við næstu sendingu?
3) Munuð þið panta mikið umframmagn til að selja okkur?
4) Koma einhverjar skemtilegar tegundir í næstu sendingu?
1. Er að reyna að koma í veg fyrir það.
2. Var að panta meira
3. Já
4. Erum að skipta um maltframleiðanda, fylgja því smá breytingar. Í grunninn það sama til að byrja með.
Eyvindur wrote:Ætlið þið þá að selja þetta í minni einingum?
2 kg einingum fyrir nokkra heppna, þið reynið kannski að deila þessu á mikli ykkar ef mögulegt.
Re: Verðlisti á malti og humlum frá ÖB
Posted: 5. Apr 2010 20:05
by gunnarolis
Sælir, hvað er að frétta af maltinu hjá Ölvisholti núna?
Er komin ný sending, á síðunni stendur að það sé enn allt uppselt?
Kv Gunnar.
Re: Verðlisti á malti og humlum frá ÖB
Posted: 6. Apr 2010 14:55
by Valli
Ný maltsending komin í hús, loksins.
Við erum búnir að skipta um framleiðanda, núna kemur maltið frá Simpson Maltings í Bretlandi. Vefverslunin hefur verið uppfærð í samræmi við það.
Jafnframt munum við rukka 300kr aukalega fyrir hverja mölun héðan í frá.
Re: Verðlisti á malti og humlum frá ÖB
Posted: 7. Apr 2010 02:23
by dax
Glæsilegt! Hlakka til að prófa Simpson!
