Ef þetta væri svo einfalt... Erum með reCaptcha, en eins og margir eflaust vita er meira en ár síðan það var brotið upp, og þrátt fyrir "endurbætur" Google stoðar það lítið enn. Ef þið þekkið betri lausn, þá endilega deilið því hérna.
Ég var raunar að íhuga að virkja ritstýringu á skráningarbeiðnum, þ. e.a. s. að allar skráningar séu lesnar yfir af aðstandenum síðunnar, og hafnað eða samþykktar í kjölfarið. Skráningarbeiðnir eru svo fáar. Skiptir mig ekki máli hvort ég lesi yfir tvær notendaskráningar á viku og hafna eða synja, eða banni tvo notendur á viku.
Annars hefur þetta aldrei náð því stigi að geta talist raunverulegt vandamál hérna. Þó einn og einn sleppi í gegn og nái að henda inn einum eða tveimur póstum áður en hann er bannaður og póstunum eytt, þá hefur það engin áhrif á virkni eða læsileika spjallborðsins.