Page 1 of 1
Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 20. Jul 2012 13:18
by Idle
Eftir að ég ákvað að reyna að bæta myndaviðhengin svolítið, fór ég að velta fyrir mér hvort það væri ekki eitthvað fleira sem menn vildu gjarnan hafa af svona möguleikum og þægindum á spjallinu.
Er nú heldur hugmyndasnauður eins og er sjálfur, svo endilega komið með tillögur. Eina sem ég man eftir í svipinn, er að menn gefa stundum "like" eða "+1" á ákveðna þræði eða svör. Það er e. t. v. eitthvað sem mætti innleiða sem hálfgert "reputation system" (til gamans, fá stjörnu eða önnur verðlaun fyrir innihaldsríka þræði eða svör), eða tengja jafnvel beint við aðra samskiptavefi (Andritið, Google+, Twitter og allt hitt)?
Gef þessu hálfan mánuð, sjáum til hversu hugmyndaríkir gerlarnir eru.

Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 20. Jul 2012 13:38
by Proppe
Plúskerfi er sniðugt. Það er oft sem maður er jákvæður gagnvart ýmsu sem er póstað hérna, en hefur í sjálfu sér lítið um það að segja.
Svo var ég glaður að sjá að myndir eru hérmeð rísæsaðar sjálfvirkt.
Það er svosum fátt við þetta forum að bæta, nema meiri virkni hjá okkur meðlimunum.
Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 20. Jul 2012 14:52
by bergrisi
Ég tek undir "like" takka. Maður veit að menn vilja fá comment á það sem þeir setja inn og oft hefur maður ekkert annað að segja en "flottur". Maður hefur séð pósta sem hafa verið skoðaðir yfir 200 sinnum en enginn sett neitt inn. Held að þetta myndi ýta undir virkni á spjallinu.
Annars er ég mjög ánægður með uppsetninguna. Margir möguleikar. Hef verið að skoða spjall í Danmörku og það er með öllu ómögulegt. Eins finnst mér homebrewtalk ekki þægilegt, kannski því það er svo stórt.
Er annars mjög ánægður með þessa vinnu hjá þér.
Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 20. Jul 2012 19:23
by hrafnkell
Reputation/Thanks er svolítið sniðugt til að hvetja fólk til að gera góða pósta. Ímynduð internetstig eru ótrúlega verðmæt fyrir notendur spjallborða

Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 20. Jul 2012 19:27
by sigurdur
hrafnkell wrote:Reputation/Thanks er svolítið sniðugt til að hvetja fólk til að gera góða pósta. Ímynduð internetstig eru ótrúlega verðmæt fyrir notendur spjallborða

Sammála .. þau eru næstum jafn verðmæt og ímynduðu krónurnar á bankareikningunum okkar

Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 22. Jul 2012 13:01
by bergrisi
Ein ábending.
Ég er oft að skoða gamla þræði hérna enda hafa upphafsmenn verið mjög virkir hérna í byrjun. Það eru svo margir þræðir sem hafa innihaldið myndir í frumbernsku Fágunar. Þessar myndir sjást ekki í dag. Er hægt að tryggja á einhvern hátt að gamlar myndir sjáist svo við nýgræðingarnir getum lært af þeim?
Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 22. Jul 2012 13:04
by Idle
Sé myndunum hlaðið upp sem viðhengjum hér á það að vera öruggt. Sé hinsvegar vísað í þær annarsstaðar er ómögulegt fyrir okkur að tryggja að þær verði þar áfram.

Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 23. Jul 2012 19:05
by Gvarimoto
Live chat box ? Oft sem maður er að fá sér og spila tónlist þá væri gaman að kíkja og tjatta við ykkur live
Edit, heyrðu, fann þetta bara hérna núþegar svo nevermind

Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 23. Jul 2012 21:45
by helgibelgi
Það væri geggjað að fá like-kerfi þannig að hægt sé að læka ákveðna pósta og líka þræðina eins og er á HBT (stjörnukerfi). Þá er ég eiginlega sáttur.
Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 23. Jul 2012 23:31
by Idle
helgibelgi wrote:Það væri geggjað að fá like-kerfi þannig að hægt sé að læka ákveðna pósta og líka þræðina eins og er á HBT (stjörnukerfi). Þá er ég eiginlega sáttur.
Smelltu á "thumbs up" hnappinn við frumpóstinn í þræðinum.

Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 23. Jul 2012 23:34
by sigurdur
Hvaða like hnapp? Sé ekki neitt..!!
Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 23. Jul 2012 23:50
by Idle
sigurdur wrote:Hvaða like hnapp? Sé ekki neitt..!!
Ekki í "announcement" umræðum, nei. Öllum öðrum. Sjá viðhengi.

- asdf.PNG (3.16 KiB) Viewed 15362 times
Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 24. Jul 2012 18:07
by sigurdur
Idle wrote:sigurdur wrote:Hvaða like hnapp? Sé ekki neitt..!!
Ekki í "announcement" umræðum, nei. Öllum öðrum. Sjá viðhengi.
asdf.PNG
svo virðist sem að það sé bara víst

Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 18. Sep 2012 13:59
by QTab
spjallborðið er frábært fyrir umræður en fyrir nýgræðinga sem koma inn þá eru litlar upplýsingar á síðunni, svo ég taki smá dæmi þá var ég að leita að góðum útskýringum á secondary og fann fullt af umræðum um hvort það væri gott í hinni og þessari uppskrift en hvergi útskýringu eða leiðbeiningar, væri kannski sniðugt að setja upp wiki.fagun.is og setja þar inn allt sem flokkast undir upplýsingar frekar en umræður
Re: Hvað finnst ykkur vanta í spjallborðið?
Posted: 18. Sep 2012 15:43
by Idle
QTab wrote:spjallborðið er frábært fyrir umræður en fyrir nýgræðinga sem koma inn þá eru litlar upplýsingar á síðunni, svo ég taki smá dæmi þá var ég að leita að góðum útskýringum á secondary og fann fullt af umræðum um hvort það væri gott í hinni og þessari uppskrift en hvergi útskýringu eða leiðbeiningar, væri kannski sniðugt að setja upp wiki.fagun.is og setja þar inn allt sem flokkast undir upplýsingar frekar en umræður
Tekið til greina, enda góður punktur þar.
"Sticky topics" eiga svo auðvelt með að fara úr böndunum, og þá er vissulegra betra að safna viskunni saman í einn góðan og vel skipulagðan sarp.