Við félagarnir ákváðum það að gera heiðarlega tilraun til þess að búa til eplacider...
eftir smá uppflettingar á netinu var ákveðið að nota jonagold epli, græn epli og perur. Við stefndum á að gera 5L bara svona til að prófa...
Eftir nokkrar tilraunir í gær með því að pressa epli og mæla magn þá fékk ég það út að við þyrftum ca 100 epli fyrir 5L.
Við fórum í krónuna og keyptum 80 jonagold epli, 20 græn epli og 20 perur (10stk á 390kr)... svo voru herlegheitin pressuð í safapressu (einhver græja úr elko ekkert fancy) og útúr herlegheitunum komu 13L þannig að mælingarnar í gær á því hversu mikið magn epla við þurftum voru alveg way off... en það er bara gaman
Þegar þessu hafði verið blandað saman þá var OG 1.032 en við vildum bæta aðeins í þannig að við skelltum dassi af hrásykri og býflugnahunangi út í þannig að OG varð 1.045.. svo notuðum við kampavínsger út í þetta...
(man ekki hvað það heitir en skal tékka á því ef menn eru forvitnir)
Ef ég hef lesið mig rétt til þá er planið að láta þetta gerjast á primary í 2 vikur (eins og ég hef verið að gera með ölið) og skella þessu á flöskur og geyma í amk 6mánuði...
Safinn var mjög góður svona nýpressaður þannig að þá er bara að sjá hvort að smá gerjun geri þetta ekki enn betra...
kv.Steinar
------------------------
í gerjun: Epla cider
Á flöskum : BeeCave, Brúðkaupsöl, Munich bomb, Hvítur sloppur