Page 1 of 1
Spjallið í lægð?
Posted: 7. Jun 2012 23:32
by Idle
Mér þykir þögnin eftir aðalfundinn heldur þyrmandi. Allir í sumarleyfum og hættir að brugga eða skipuleggja næstu græjusmíðar?

Re: Spjallið í lægð?
Posted: 7. Jun 2012 23:40
by sigurdur
Ég held að flestir séu bara komnir á sumarfylleríið ... m.v. fyrri reynslu, þá lýkur því í kring um nóv/des

Re: Spjallið í lægð?
Posted: 8. Jun 2012 00:07
by Idle
Framleiðsla fyrri mánaða tekin til ítarlegra athugana, sem sagt. Vitanlega mega veigarnar ekki fara til spillis!

Re: Spjallið í lægð?
Posted: 8. Jun 2012 09:07
by bergrisi
Þetta er frekar rólegt núna en menn eru eflaust með hugann við sumarið.
Afrekaði að setja hveitibjór í flöskur í gær viku seinna en ég ætlaði mér.
Ætli bjórgerðin sé ekki meira vetrarsport.
Re: Spjallið í lægð?
Posted: 8. Jun 2012 10:01
by Plammi
Er að gera smá toucan test, sem fær nafnið Hans Klaufi sökum hrakfalla á bruggdegi (missti aðra dósina í virtinn og fattaði þegar allt var komið í fötu að ég ætti bara einn loftlás sem ég var að nota í hvítvínslögnina)

Mun skila skýrslu um hann eftir átöppun þ.e. ef hann tekst ágætlega, annars verður honum sópað undir teppi.
Hvítvínið fer á flöskur um helgina og bragðaðist það bara slummufínnt þegar ég smakkaði það síðast.
Better Brew bjórinn er orðinn vel drykkhæfur, loksins komin þokkaleg kolsýra í hann og súra bragðið nánast horfið. Tek samt eftir því að hann er miklu betri í 330ml flöskunum heldur en 500ml. Notaði coopers carb drops sem ég þurfti að skera í helminga fyrir 500ml flöskurnar, kannksi að það hafi einhver áhrif. Mun allavega ekki nota þessa carb drops aftur, mikill peningur fyrir lítinn ávinning.
Re: Spjallið í lægð?
Posted: 8. Jun 2012 12:50
by Gvarimoto
Já sammála með BetterBrew, ég gerði IPA fyrir einhverju síðan og hann er rétt núna klár í kæli, mér finnst hann ekkert það spes samt.
Ég mæli samt með því að þú farir að sjóða ca 500ml vatn og setja um 150gr sykur út í og fleytir svo bjórnum ofan á það í annari fötu, hef gert þetta síðustu skipti og þú sparar góðan tíma á þessu plús það fer nákvæmlega jafnt um allan vökvan
Svo var ég að setja á flöskur í gær fyrsta AG Hvíta sloppinn, smakkaðist rosalega vel

Í fyrradag sauð ég BeeCave uppskriftina en átti aðeins við humlana, setti aðeins meira en skv uppskrift sem ætti að virka fínt því OG var mælt 1.054
Svo pantaði ég meira frá brew.is, Cascade/Amarillo bjór sem ég er pínu spenntur fyrir
Fékk sendingu að utan um daginn sem innihélt m.a flöskusprautara, StarSan brúsa (i love it) meskipoka og humlapoka ásamt 4 krönum til að setja á föturnar mínar

Re: Spjallið í lægð?
Posted: 8. Jun 2012 13:17
by hrafnkell
Þetta róast aðeins á sumrin hugsa ég... Sérstaklega þegar þaðer búið að vera svona gott veður, þá nennir maður minna að brugga.
Ég þarf að drífa í að henda í 2-3 laganir asap, afmæli í ágúst og möst að eiga nóg af öli fyrir það

Re: Spjallið í lægð?
Posted: 9. Jun 2012 12:30
by Plammi
Gvarimoto wrote:Ég mæli samt með því að þú farir að sjóða ca 500ml vatn og setja um 150gr sykur út í og fleytir svo bjórnum ofan á það í annari fötu, hef gert þetta síðustu skipti og þú sparar góðan tíma á þessu plús það fer nákvæmlega jafnt um allan vökvan
Það er einmitt á dagskránni að tækla þetta svona.