Page 1 of 1

Vantar hjálp með BIAB tunnu

Posted: 23. May 2012 16:15
by Gvarimoto
Sælir, var að fá pakka í dag frá brew.is

33l suðufata með 2x elementum og mér gengur frekar erfiðlega með að setja þessi element í fötuna, amk til að sitja þétt að, þetta míglekur strax og ég set vatn í fötuna.


Hvað eru menn að gera til að þétta þetta alveg ?

Re: Vantar hjálp með BIAB tunnu

Posted: 23. May 2012 17:08
by gosi
ég keypti mér sílikon mottu í húsa einhvern tíman og klippti hana til. Hafði hana eins litla og mögulegt væri og ekki einn dropi síðan. Gæti sett inn mynd í kvöld.

Re: Vantar hjálp með BIAB tunnu

Posted: 23. May 2012 19:09
by Gvarimoto
Tóskt að fá annað elementið til að hætta að leka eftir svakalega fínpússun með hníf og sandpakkír, er þetta svona ógeðslega næmt ?

Er þetta þá nokkuð öruggt ? (það verður stannslaust rafmagnsflæði í gegnum gatið þegar þetta er í notkun)

Hitt elementið lekur samt enn :(

Re: Vantar hjálp með BIAB tunnu

Posted: 23. May 2012 20:24
by gosi
Svona gerði ég þetta. Sílikon motta sem ég klippti til.
Svínvirkar.

Re: Vantar hjálp með BIAB tunnu

Posted: 23. May 2012 20:35
by sigurdur
Ég notaði sílíkon einangrunina úr hraðsuðukötlunum þegar ég setti mín element í. Það hefur ekki lekið dropi frá fyrstu ísetningu.

Re: Vantar hjálp með BIAB tunnu

Posted: 23. May 2012 21:12
by gosi
Ég nota bæði það sem fylgdi og mottuna. Gatið var greinilega ekki alveg fullkominn hringur og því náði sílikonhringurinn ekki að þétta nógu vel.

Re: Vantar hjálp með BIAB tunnu

Posted: 23. May 2012 21:50
by helgibelgi
Ég notaði, eins og Sigurður, silikon hringinn sem var í hraðsuðukatlinum og það hefur aldrei lekið hjá mér.

Hvernig tunna er þetta? Er þetta þessi klassíska síldartunna með hraðsuðukatlaelementum?

Það mikilvægasta fannst mér vera að finna rétta stærð á borinum til að fá örugglega ekki of stórt gat. Í mínu tilfelli var það 38mm í breiddina, keypt í europris í svona pakka ódýrt. síðan tók ég dúkahníf og skar allar flygsurnar sem stóðu út í loftið eftir borun, víkkaði í rauninni ekkert gatið þannig, bara rétt svo ná draslinu burt. Dúkahnífurinn virkaði mun betur en sandpappír í þetta.

Re: Vantar hjálp með BIAB tunnu

Posted: 23. May 2012 22:31
by Gvarimoto
Þetta er tunnan frá brew.is (hrafnkell)

En, ég tróð gúmmípakkningu á þetta og það er mögulegt að álplöturnar sem eiga að snertast (með kreminu á) hafi ekki snerst og vírinn í innstunguna brann yfir....

Eftir það tók ég þá pakkningu og setti saman með upprunalegu pakkningu úr katlinum og þá lekur ekkert, en ég þori ekki að setja í samband aftur :S

Re: Vantar hjálp með BIAB tunnu

Posted: 23. May 2012 23:16
by hrafnkell
Gvarimoto wrote:Þetta er tunnan frá brew.is (hrafnkell)

En, ég tróð gúmmípakkningu á þetta og það er mögulegt að álplöturnar sem eiga að snertast (með kreminu á) hafi ekki snerst og vírinn í innstunguna brann yfir....

Eftir það tók ég þá pakkningu og setti saman með upprunalegu pakkningu úr katlinum og þá lekur ekkert, en ég þori ekki að setja í samband aftur :S
Notaðu fjöltengi með rofa, þá geturðu rofið strauminn þar, í staðinn fyrir að fara með puttana nálægt dauðagildrunni :drunk: :D

Re: Vantar hjálp með BIAB tunnu

Posted: 23. May 2012 23:40
by Gvarimoto
hrafnkell wrote:
Gvarimoto wrote:Þetta er tunnan frá brew.is (hrafnkell)

En, ég tróð gúmmípakkningu á þetta og það er mögulegt að álplöturnar sem eiga að snertast (með kreminu á) hafi ekki snerst og vírinn í innstunguna brann yfir....

Eftir það tók ég þá pakkningu og setti saman með upprunalegu pakkningu úr katlinum og þá lekur ekkert, en ég þori ekki að setja í samband aftur :S
Notaðu fjöltengi með rofa, þá geturðu rofið strauminn þar, í staðinn fyrir að fara með puttana nálægt dauðagildrunni :drunk: :D

Hehehe, ég setti upphaflegu pakkninguna á frá þér, og þétti ekki eins fast (sá á youtube videoi að þú nærð betri árangri með því að þétta miðlungsfast útaf sílíkoninu)

Tók mig langan tíma til þess að þora að prófa aftur en ég tók snúru og lét reyna á sama element og áðan (bara 1, prófaði líka bara 1 áðan) og hélt í snúruna af og til, eins og mig langaði til að deyja.

Þetta virðist amk virka núna :) Náði suðu á 5L prufuvatni :)

Á morgun prófa ég svo bæði elementin á 25L vatni :) þá fæ ég líka tækifæri til að prófa kælispíralinn ;)