Page 1 of 1
Better Brew Export Lager (1.8kg kit)
Posted: 21. Apr 2012 13:14
by Plammi
Sælir, þetta er það sem ég setti í mína fyrstu lögn:
Better Brew/Export_Lager 1,8kg
Upplýingar frá framleiðanda:
A very well balanced, medium hopped classic lager.
Bitterness 18-22 EBU, colour 6-10 EBC, alcohol 4.6% ABV.
Uppskrift:
Export Lager kit - 1,8kg
Bruggsykur (dextrose) - 1kg
Ger sem fylgdi með kittinu
Coopers gerjunardropar (1 í 330ml 1,5 í 500ml flöskur)
Ferli:
Blandað eftir leiðbeiningum = 23Lítrar
Gerjað í 10daga við 19-22°C
Sett á 35x500ml og 12x330ml flöskur, sirka 22L
Gleymdi að taka OG mælingu en FG var 1008
Athugasemdir
Ég smakkaði bjórinn eftir að ég var búinn að taka FG og ég verð að segja að ég er nokkuð spenntur fyrir honum. Ég vildi gera einfaldann bjór mundi svipa til þessa algengu lagerbjóra og ég held að hann nái því alveg.
Hann var reyndar aðeins bragðdaufari en ég átti von á og tók því áfengismælingu með vinometer. Mælirinn sýndi tæp 8%, sem mig grunar að sé einhver vitleysa (hafði aldrey notað svona græju áður og fattaði ekki að tæma alla kolsýru úr sýninu fyrir mælingu).
Og þá er það bara að bíða, planið er að taka nokkra bjóra og setja í kæli eftir 2 vikur og prufa eftir viku í kæli.
Re: Better Brew Export Lager (1.8kg kit)
Posted: 21. Apr 2012 14:33
by bergrisi
Flott, Það ætti að vera nóg að bíða í viku með að setja einn í ísskáp. Ætti alveg að kolsýrast eitthvað á þeim tíma ef hann er við stofuhita.
Þú mannst örugglega næst að taka OG.
Miðað við magnið sem þú færð og FG þá ættiru að vera mjög nálægt því sem uppskriftin segir að hann eigi að vera. Gæti trúað 4,5-5 prósent.
Gangi þér vel með þetta.
Re: Better Brew Export Lager (1.8kg kit)
Posted: 21. Apr 2012 18:43
by Gvarimoto
Flott, hef verið spenntur fyrir því að prófa Better Brew kittin, búinn að lesa margt gott um þau, endilega láttu vita hvernig smakkast

Re: Better Brew Export Lager (1.8kg kit)
Posted: 12. May 2012 23:14
by Plammi
Jæja, bjórinn búinn að vera 3 vikur á flöskum og er ég að taka smakk á honum núna.
Hann er alveg sæmilegur, alls ekki eins góður og ég vonaði, en vel drykkhæfur samt. Það er eitthvað súrt aukabragð sem er að trufla mig, en það vonandi eldist af honum. Ef það bragð dofnar, eða fer alveg, þá verður þetta slummufínn bjór.
Hlutlaus bjór, svona eins og ódýru lagerbjórarnir í ríkinu, ekki ósvipaður Faxe premium sem ég kaupi oft í ríkinu (svona ef ég hunsa aukabragðið).
Re: Better Brew Export Lager (1.8kg kit)
Posted: 13. May 2012 01:17
by garpur
Ég tók einmitt Better Brew kittið sem mitt fyrsta bjórbruggs tilraun og varð fyrir valinu Yorkshire Bitter týpan. Ég kannast vel við þetta súrabragð sem þú minnist á og var nokkuð mikið að bögga mig. Það er rétt að þetta dofnaði eftir einhvern tíma og var orðið töluvert minna eftir ca. 2 mánuði, en mér fannst ég samt finna alltaf einhverna súran keim. Veit ekki hvort þetta er dextrosen/sykurinn sem gerir þetta, það geta proffarnir hérna kannski sagt til um?
Ef ég væri þú þá myndi drífa mig núna að taka næsta þrep, sem er eftir minni meiningu að sjóða óhumlað Liquid Malt extract (ekkert dextrose) brugg þar sem þú sjálfur bætir við humlunum. Ég er að sötra á svoleiðis núna og er bara mjög sáttur, hef aldrei fundið súra bragðið sem ég fann í kittinu. Svo var ég að vísu að byrja í AG brugginu í síðustu helgi en það er að gerjast í rólegheitunum í bílskúrnum, þannig að ég drekk sáttur að LME á meðan það er að klárast

Re: Better Brew Export Lager (1.8kg kit)
Posted: 13. May 2012 14:13
by sigurdur
Þetta yfirþyrmandi magn af einföldum sykrum veldur súra bragðinu.
Re: Better Brew Export Lager (1.8kg kit)
Posted: 13. May 2012 17:01
by hrafnkell
sigurdur wrote:Þetta yfirþyrmandi magn af einföldum sykrum veldur súra bragðinu.
Tek undir það. Maður vill helst ekki fara yfir 10% af einföldum sykrum. Sama hvort það heiti dextrósi, "bruggsykur" eða hvað.
Re: Better Brew Export Lager (1.8kg kit)
Posted: 15. May 2012 10:52
by Gvarimoto
Það er nú enginn haus á þessari mynd hjá þér, ertu viss um að hann séi ekki undercarbed ?
Hef tekið eftir því að undercarbed kit bjórar haldast súrari lengur
Edit; er að fara að flaska BB IPA í kvöld, skelli inn mynd þegar fyrsta flaskan verður opnuð

Re: Better Brew Export Lager (1.8kg kit)
Posted: 15. May 2012 17:06
by Plammi
Hann var alveg þokkalega carbed, og það hélst alveg þar til síðasta sopa.
En þetta fer allavega ekki til spillis, var bara búinn að gera of miklar væntingar til bjórsins (lét góða markaðssetningu plata mig aðeins).
Bee Cave BIAB verður allavega næsta bjórbrugg hjá mér, það verður gaman.
En þangað til þá slaka ég bara á og fæ mér heimabrugg

Re: Better Brew Export Lager (1.8kg kit)
Posted: 16. May 2012 15:39
by Gvarimoto
Um að gera
Setti BB IPA á flöskur í gær, keyti svo BB Northern Brown Ale + 1.1kg LME sem ég ætla að nota í hann, enginn sykur.
Svo er ég að panta BIAB setup frá hrafnkelli

Re: Better Brew Export Lager (1.8kg kit)
Posted: 25. May 2012 20:44
by Plammi
Gvarimoto wrote:Það er nú enginn haus á þessari mynd hjá þér, ertu viss um að hann séi ekki undercarbed ?
Hef tekið eftir því að undercarbed kit bjórar haldast súrari lengur
Held þú hafir verið alveg spot on með þetta, bjórinn er allur að koma til núna.
Það er kominn smá haus á hann núna, en hann helst ekki lengi. Bjórinn er allur jafnari, súra bragðið nánast alveg farið. Gæti jafnvel pælt í því að bjóða vinum að smakka á næstunni.
Er að pæla samt að "gleyma" honum í nokkrar vikur í viðbót og sjá hvað gerist.
Re: Better Brew Export Lager (1.8kg kit)
Posted: 26. May 2012 12:10
by bergrisi
Gleymska í 1-3 mánuði gerir mikið fyrir bjórinn. Sá síðasti er alltaf bestur.
Það er bara svo skrambi erfitt að geyma hann.