hrafnkell wrote:Enginn munur á hvort er þægilegra, alveg sama stöffið þannig séð. pinlock eru ögn notendavænni þar sem þú getur ekki sett gas á bjórtengið og öfugt. Pin lock eru pínulítið lægri og feitari, ball lock mjórri og stundum komast fleiri inn í ísskáp útaf því.
Já ég vill þessa mjóu frekar, þá ætti ég að koma 3 amk í kælin (tek 2 í þessari ferð, og redda mér 1 seinna) eða 2+co2 (menn mæla nú samt á móti því að kæla co2 kútinn)
En ball lock eru alveg jafn notendavænir og pin lock þá, þar sem bjór/gas tengin eru ekki af sömu þykkt og því ekki hægt að setja á vitlausan stút
En hinsvegar spurning, þeir sem eru með pin lock (coke kútarnir right ?) hafiði prófað að tala við vífilfell um að kaupa tóman kút ? hef séð þessa pin lock kúta í mörgum fyrirtækjum merktir "Coke" hinsvegar eru pepsi kútarnir (ball lock) hvergi til vegna þess að ölgerðin notar þá ekki heldur kassa-kúta (pappa-gerðir, einnota?)