Page 1 of 1
					
				Viðvörun þegar Auber SYL-2352 stýring nær réttum hita
				Posted: 28. Mar 2012 11:47
				by gugguson
				Góðan daginn herramenn.
Er möguleiki á Auber SYL-2352 hitastýringum að tengja t.d. ljós sem segir manni þegar umbeðnum hita hefur verið náð (eða hljóðmerki)?  Ef svo er, getur hvaða auli sem er (lesist ég) tengt það?
Annað, ég er að nota manual stillingu í suðu (5500W element á 70%) og elementið virðist slökkva á sér á c.a. 30 sekúndna fresti í 5-10 sekúndur.  Kæliplatan virðist ekki heit þannig að það er ekki vandamálið.  Þekkir þetta einhver?
Jói
			 
			
					
				Re: Viðvörun þegar Auber SYL-2352 stýring nær réttum hita
				Posted: 28. Mar 2012 12:17
				by hrafnkell
				Getur sett alarm á, sem væri þá á þeim hita sem þú tiltekur. Þarft svo að kaupa einhverja vælu eða ljós til að tengja við alarm outputtið. Það eru 2 alarm output á stýringunni, getur stillt þau bæði eins og þú vilt.
			 
			
					
				Re: Viðvörun þegar Auber SYL-2352 stýring nær réttum hita
				Posted: 28. Mar 2012 12:25
				by gugguson
				Er þetta bara einn vír í ljós til að þetta virki eða er þetta einhver hringavitleysa?
			 
			
					
				Re: Viðvörun þegar Auber SYL-2352 stýring nær réttum hita
				Posted: 28. Mar 2012 13:22
				by kalli
				Google getur hjálpað.
Frá heimasíðu Auberins: "Dual alarm outputs with 10+ activation methods/situations"
http://www.auberins.com/index.php?main_ ... ducts_id=3" onclick="window.open(this.href);return false;
Leiðarvísirinn er hér: 
http://auberins.com/images/Manual/Manua ... %203.4.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;
Úr leiðarvísinum:
Alarm output Relay contact. 250VAC/1A, 120VAC/3A, 24V/3A Alarm function
Process high alarm, process low alarm, deviation high alarm, and deviation low alarm
Það er einfalt að tengja þetta en vesen að stilla á nýtt hitastig fyrir alarm. Allt í lagi að gera það einu sinni en fyrir hvert hitastig í þrepameskingu ...  

 
			
					
				Re: Viðvörun þegar Auber SYL-2352 stýring nær réttum hita
				Posted: 28. Mar 2012 14:11
				by gugguson
				Þetta er óskiljanlegt  

 
			
					
				Re: Viðvörun þegar Auber SYL-2352 stýring nær réttum hita
				Posted: 28. Mar 2012 14:58
				by hrafnkell
				Þú getur stillt alarm hitastigið, en það er óháð stillihitastiginu. þ.e. á hvert skipti sem þú breytir stillihitanum þá þarftu líka að breyta alarm hitastiginu. Það er pínu bögg, en maður gæti líklega alveg látið þetta ganga upp með því t.d. að stilla þetta á 64-65 gráður, þá lætur græjan mann vita alltaf þegar maður er kominn í meskihitastig, eða þegar maður er alveg að verða kominn í meskihitastig.
			 
			
					
				Re: Viðvörun þegar Auber SYL-2352 stýring nær réttum hita
				Posted: 28. Mar 2012 15:22
				by gugguson
				Ég skil þig.
Þá er þetta varla þess virði, ég hélt að þetta væri samstillt við núverandi hita og umbeðin hita.