Page 1 of 1
Óska eftir 3kW elementi
Posted: 3. Mar 2012 16:29
by rdavidsson
Sælir,
Er að fara að smíða mér suðupott og vantar 3kW element (eða 2x1,5kW), vill ekki nota element úr hraðsuðukötlum..
Verður að vera Low watt density element.
Kv, Raggi
Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 3. Mar 2012 18:03
by sigurdur
Þú getur keypt þér 5,5kW element af brew.is og sett einhvern stóran thyristor til að keyra aflið niður í 3kW.
Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 3. Mar 2012 19:59
by rdavidsson
sigurdur wrote:Þú getur keypt þér 5,5kW element af brew.is og sett einhvern stóran thyristor til að keyra aflið niður í 3kW.
Takk fyrir svarið. Geturu bent mér á hvaða Thyristor ég gæti hugsanlega notað fyrir þetta?
Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 3. Mar 2012 22:14
by sigurdur
BTA41-600B
Gæti virkað að nota BTA41-600B og skipta út TIC226 í rásinni hér
http://www.epanorama.net/documents/ligh ... ml#1kw230v" onclick="window.open(this.href);return false;
Gangi þér vel

Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 4. Mar 2012 12:08
by Squinchy
Svo getur þú líka gert sama og ég gerði, 5,5Kw elimentið og PID stýring með ssr, allt frá
brew.is, er virkilega ánægður með það settup.
Ryðfría ró á elimentið finnur þú í
Metal
Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 4. Mar 2012 18:06
by rdavidsson
Squinchy wrote:Svo getur þú líka gert sama og ég gerði, 5,5Kw elimentið og PID stýring með ssr, allt frá
brew.is, er virkilega ánægður með það settup.
Ryðfría ró á elimentið finnur þú í
Metal
Það er held ég algjört overkill að vera með svona stórt element þar sem að við ætlum bara að gera 30L í einu

En ég er búinn að finna 3kW element hjá Rafvörur.is, kostar 8.500, ætlaði bara að ath hvort að það væri einhver að losa sig við eitt slíkt

Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 4. Mar 2012 18:08
by rdavidsson
Held að þetta sé aðeins flóknara en ég ætlaði að gera þetta, eins og ég skrifaði ó póstinum fyrir neðan þá er ég búinn að finna element hjá Rafvörur.is, LWD element
Kv,Raggi
Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 4. Mar 2012 21:22
by sigurdur
Flott mál.

Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 4. Mar 2012 23:36
by Squinchy
Ég er að nota 5.5KW element í 25L lagarnir og finnst það enganveginn vera overkill, þeir sem eru að gera stærri laganir eru jafnvel að nota tvö 5.5KW
Mæli samt með að skoða PID stýringu til að stjórna því elementi sem þú velur þér, er bara svo mikið must að mínu mati eftir að hafa prófað að brugga með henni, yfirhita aldrei meskivatnið né skolvatnið
En passaðu bara að elementid hafi mikið yfirborðs flatamál, svo þú brennir ekki virtinn
Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 5. Mar 2012 14:40
by oliagust
Til að bæta í reynslubankann, þá er ég með 3x2200W (hraðsuðu) element í 25 lítra lögun ásamt PID controller. Það er þægilegt þegar á að hita meskivatnið, og ná upp suðuhita.
En mér finnst 6600W vera of mikið í suðu, það sýður upp úr ef það er allt í gangi í einu. Þannig nota ég bara eitt element í að viðhalda meskihita og suðu.
Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 5. Mar 2012 18:52
by hrafnkell
Getur pid stýringin þín ekki sett á %? Þá gætirðu keyrt öll elementin á duty cycle, t.d. 40-50%. Þá þarftu ekkert að vesenast með að taka úr sambandi. Annars ætti eitt element líka að vera perfect í að viðhalda fínni suðu í 25-30 lítrum.
Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 5. Mar 2012 20:14
by rdavidsson
Frábært hvað menn eru tilbúnir að hjálpa manni og svara strax
Ég er einmitt búinn að versla mér PID regli og 40A SSR sem ég ætla að nota í þetta (Ebay). Ég þarf að ath hvort að ég geti stillt duty cycle á reglinum, þá væri málið steindautt! Væri líka fínt upp á framtíðina að gera þar sem að við eigum pottþétt eftir að stækka yfir í 40-60L bruggun þegar maður hefur náð tökum á þessu og þá er 3kW sennilega of lítið....
Þegar potturinn verður tilbúinn þá hef ég samband við þig Hrafkell og versla restina af draslinu í þetta
Kv, RÖD
Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 6. Mar 2012 08:45
by hrafnkell
Það eru reyndar ekki allar pid stýringar með %-stillingu, en þó einhverjar. Þessar ódýrustu á ebay eru ekki með það. Stýringarnar sem ég er að selja eru með hana.
Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 13. Mar 2012 19:35
by rdavidsson
hrafnkell wrote:Það eru reyndar ekki allar pid stýringar með %-stillingu, en þó einhverjar. Þessar ódýrustu á ebay eru ekki með það. Stýringarnar sem ég er að selja eru með hana.
Ég googlaði reglinn aðeins og fann inn á HomeBrewTalk að það væri hægt að stilla duty cycle á reglinum mínum.
Ert þú ekki að selja Auber regla? Heitir parameterinn
"oPH" (Output Upper Limit 0-100%) sem segir til um duty cycle, sem maður getur notað til að "gera" 5kW element að 2,5kW @50% oPH ?
Kv, RÖD
Re: Óska eftir 3kW elementi
Posted: 13. Mar 2012 19:46
by hrafnkell
Duty cycle er ekki %-stilling...
Oph thekki eg ekki, en thu minnkar ekki amper notkun med thvi ad setja % af afli a pid styringu.
Utskyri kannski betur seinna ef oskad er.. nenni ekki ad skrifa meira a simann
