Langt síðan ég hef staðið í flöskuþrifum... Mín reynsla með pappírsmiða, einkum á Fuller's, Erdinger, Paulaner og slíkum flöskum, var sú að það var nóg að láta þær liggja í heitu vatni í um klukkutíma, og miðarnir og límið runnu sjálfkrafa af. Skolaði þær svo bara aftur með heitu vatni úr sturtuhausnum, og þá var ekkert klístur eftir.Dabby wrote:Ég var búinn að lesa þetta, virkar þetta almennt á þá miða sem eru leiðinlegir?
Ég er að hugsa um flöskur með pappírmiðum þ.a. ég get ekki rifið þá af og ráðist svo með matarolíu á límið... Ætti líklega að reyna að bleyta miðann með olíu og sjá hvernig það gengur.
Þetta er einmitt mín reynsla. Íhugaði alvarlega í kvöld að brjóta flöskurnar, bræða þær og steypa upp á nýtt. Ekki frá því að það væri fljótlegra.sigurdur wrote:Glerskafa, matarolía, uppþvottalögur og þolinmæði ...
... þegar ég nenni að taka miðana af .. annars fara flöskurnar stundum með miðanum í safnið.
Ég er búinn að finna lausnina, "Hreinsað bensín", það virkar allveg fáránlega vel á allt svona klístur og lím þegar búið er að taka miðana af... Þetta er í litlum flöskum frá "gamala apótekinu":æpíei wrote:Ég prófaði matarolíuna á Borgarflöskurnar og það er rétt, miðarnir koma auðveldlega af. Hins vegar situr eftir djöfulli erfitt lím sem klessist í allt og gerir almennt lífið erfitt. Besta, auðveldasta og fljótlegasta leiðin sem ég fann á þessar flöskur er að leggja þær í volgan (klór) vökva í nokkra klukkutíma, svo skafa miðann af með rakvélablaðssköfu, í mjóum röndum niður frá hálshluta að botni. Límið kemur þá af með miðatæjunum. Eftir að miðinn er allur af þarf stundum rétt að skafa upp smá lím, svo maka smá uppþvottalegi á og skola með volgu vatni. Tekur ca tvær mínútur á flösku og hún er eins og ný.
1) Setja heitt vatn í flöskuna og mýkja límið með hitanum af vatninu.æpíei wrote:Ég prófaði matarolíuna á Borgarflöskurnar og það er rétt, miðarnir koma auðveldlega af. Hins vegar situr eftir djöfulli erfitt lím sem klessist í allt og gerir almennt lífið erfitt. Besta, auðveldasta og fljótlegasta leiðin sem ég fann á þessar flöskur er að leggja þær í volgan (klór) vökva í nokkra klukkutíma, svo skafa miðann af með rakvélablaðssköfu, í mjóum röndum niður frá hálshluta að botni. Límið kemur þá af með miðatæjunum. Eftir að miðinn er allur af þarf stundum rétt að skafa upp smá lím, svo maka smá uppþvottalegi á og skola með volgu vatni. Tekur ca tvær mínútur á flösku og hún er eins og ný.
Gerðist lítið fyrstu 15 mínúturnar en skipti frá undir-yfir hita í blástur og þá datt þetta af og ekkert lím á flöskunumcresent wrote:Gamall þráður og allt það, en...
Flöskur frá Borg: Ég baka flöskurnar á 180-200 gráðum í 20 min. Við það dettur miðinn af. Stundum eru smá límleifar eftir sem fara af með smá stálull undir rennandi vatni.