Page 1 of 1

Lefty Blond

Posted: 23. Oct 2011 15:25
by Eyvindur
Mig langaði að gera belgískan blond, og endaði bara á því að taka uppskrift úr Brewing Classic Styles. Gerði hana svo til nákvæmlega eftir bókinni. Ég á eftir að setja sykurinn út í - ætla að gera það þegar gerjunin fer að hægja á sér. Ég er með hann í 18°C núna og ætla að hækka upp í 20 á svona 4 dögum (eftir að gerjunin hefst). Gerið fór út í um 2 í nótt, og enn er allt með kyrrum kjörum.

Uppskriftin er hér:

http://www.brewprint.com/recipe/jamil%2527s+lefty+blond" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Lefty Blond

Posted: 24. Oct 2011 10:36
by sigurdur
Lítur vel út ... endilega láttu okkur vita hvernig gerjunin heppnast! :)

Re: Lefty Blond

Posted: 24. Oct 2011 11:35
by kristfin
ætlarðu ekki að svínhita undir honum í restina. fara amk í 28

Re: Lefty Blond

Posted: 25. Oct 2011 17:38
by Eyvindur
Veit ekki. Ég var að íhuga að fara bara nákvæmlega eftir forskriftinni í þetta sinn... En kannski. Sjáum til.

Re: Lefty Blond

Posted: 30. Oct 2011 17:00
by Eyvindur
Ég bætti sykrinum út í og hækkaði hitastigið, sem olli mikilli gleði. Ég var kominn upp í 27 gráður og búinn að haldast um það bil þegar ég tékkaði á SG, sem var þá enn töluvert of hátt, eða í kringum 1.015-16. Bjórinn var óþægilega sætur. Ég hækkaði hitann upp í 30°C, og ætla að sjá hvort það gerir ekki eitthvað. Þetta kemur mér svolítið á óvart, þar sem meskingin var um 65°C og T-58 er vant því að ná bjórnum nokkuð þurrum. Ég vona að þetta komi.

Re: Lefty Blond

Posted: 4. Nov 2011 23:19
by Eyvindur
Ókey, ég er að gefast upp á þessum. Ég veit ekki alveg hvað hefur klikkað, en þessi elska fer ekki niður fyrir 1.015. Ég er að hugsa um að skella einhvers konar pöddum í hann (Brett og dreggjum úr þeim villibjórum sem ég kemst í) og leggja hann til hliðar í nokkra mánuði eða lengur. Hann er allavega ekki nógu góður til að setja á flöskur, en ég tími nú varla að henda honum.