Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Mig langaði að gera belgískan blond, og endaði bara á því að taka uppskrift úr Brewing Classic Styles. Gerði hana svo til nákvæmlega eftir bókinni. Ég á eftir að setja sykurinn út í - ætla að gera það þegar gerjunin fer að hægja á sér. Ég er með hann í 18°C núna og ætla að hækka upp í 20 á svona 4 dögum (eftir að gerjunin hefst). Gerið fór út í um 2 í nótt, og enn er allt með kyrrum kjörum.
Ég bætti sykrinum út í og hækkaði hitastigið, sem olli mikilli gleði. Ég var kominn upp í 27 gráður og búinn að haldast um það bil þegar ég tékkaði á SG, sem var þá enn töluvert of hátt, eða í kringum 1.015-16. Bjórinn var óþægilega sætur. Ég hækkaði hitann upp í 30°C, og ætla að sjá hvort það gerir ekki eitthvað. Þetta kemur mér svolítið á óvart, þar sem meskingin var um 65°C og T-58 er vant því að ná bjórnum nokkuð þurrum. Ég vona að þetta komi.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Ókey, ég er að gefast upp á þessum. Ég veit ekki alveg hvað hefur klikkað, en þessi elska fer ekki niður fyrir 1.015. Ég er að hugsa um að skella einhvers konar pöddum í hann (Brett og dreggjum úr þeim villibjórum sem ég kemst í) og leggja hann til hliðar í nokkra mánuði eða lengur. Hann er allavega ekki nógu góður til að setja á flöskur, en ég tími nú varla að henda honum.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór