Ég er búinn að tala við menn innan Ölgerðarinnar þar sem þeir eru að opna microbrewery í nýja húsinu sem væri gaman að skoða. Þeir stefna að því að bjóða upp á heimsóknir fyrir áhugasama þar sem bruggmeistari kynnir aðstöðuna á meðan þyrstir hlustendur smakka bjór. Þegar kynningunni er lokið verður boðið upp á nóg af bjór til að svala þorsta hlustenda og gera þá hauslausa ef þeir kjósa slíkt. Þessi ferð verður þó ekki gefins en vægt gjald verður tekið fyrir hvert höfuð, ca. 1500-2000 kr.
Jú, afsakið hvað þetta hefur tekið langan tíma. Þetta er langt frá því að vera gleymt og ég lofa ykkur því að biðin mun vera þess virði Það fer að styttast í þetta, og þá meina ég einhverjar vikur, ekki ár
Kveðjur,
Stulli
Sturlaugur Jón Björnsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús