Sælt veri fólkið, ég nældi mér í svona 25 lítra brúsa í europris um daginn fyrir gambra og varð alveg dolfallinn yfir þessum brúsa, mun auðveldara að koma honum fyrir heldur en tunnunni og auðveldara að ná góðu taki á honum, en ég fór að skoða hann betur og sé hvergi matvæla plast merkið á honum (þetta með glasinu og gaffal) merkingarnar sem ég fann eru PE-HD 02, svo einhver klukka sem bendir á 10
Þetta er án efa fínt í bjórinn. PE-HD er gott plast, en það má vera að það sé ekki að matvælastaðli, eða að framleiðandinn vildi ekki greiða fyrir að geta sett slíkt merki á tunnuna.
ég nota gjarnan svona brúsa þegar mikið er að gerast. að notkun lokinni þá skola ég þá vel og læt góða skvettu af klór, fylli af vatni og læt standa í nokkra daga. tandurhreint eftir, engir burstar eða neitt
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
Ég lenti nú í smáhavaríi með einn svona brúsa fyrir nokkrum mánuðum. Asnaðist til að setja 25L í hann. Hann sprengdi af sér tappann og hentist fram á gólf úr hillunni en lenti sem betur fer á réttum kili. Maður þarf sem sé að gæta að því að ofgera ekki og ég myndi persónulega skera opið aftara gatið þar sem litli tappinn er og koma þar fyrir slöngu fyrir krausen. Það var ekki mikið grín að þrífa bjórinn af loftinu! Sem betur fer þá skemmdist bjórinn sem eftir var ekki neitt og ég fékk um 20L af fínum APA sem gerði þrifin þess virði Tók samt tíma að fá SWMBO til að samþykkja aðra sessjón eftir þetta slys.
Í gerjun: Ekkert Á flöskum: ESB Á teikniborðinu: Jólabjór