Page 1 of 2
Næsti fundur
Posted: 4. Jun 2009 16:53
by Öli
Tilvísun úr fundargerð stofnfundar:
"fundadagur er almennt fyrsti mánudagur í hverjum mánuði".
Mánudagurinn 6. júlí. er því næsti fundur samkvæmt því. Það væri ráð að koma með hugmyndir fyrir næsta fund. Meðal þess sem var stungið uppá voru fundir í heimahúsum. Veit ekki allveg hvernig ástandið verður á mínu heimili þessa dagsetningu en ég skal setja það í nefnd
Aðrar tillögur ? Væri ekki ágætt að féhirðir væri búin að smala fyrir þann tíma ?
Mér líst vel á
fyrirlestratillögu Stulla.
Hjalti: hvernig væri að hafa link-ana með aðeins áberandi lit - finnst þeir vera svo svipaðir öðrum texta í lit.
Re: Næsti fundur
Posted: 4. Jun 2009 17:36
by halldor
Ææææææiii
Ég verð staddur erlendis þennan mánudag
Kannski í Westvleteren í Belgíu... hver veit???

Re: Næsti fundur
Posted: 4. Jun 2009 17:41
by Hjalti
Snilld... þetta er eini dagurinn sem ég kemst í byrjun júní held ég!

Re: Næsti fundur
Posted: 4. Jun 2009 23:47
by Andri
Mmmmm, ætlað taka með mér smá öl og njóta þess að tala um öl á meðan. mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Re: Næsti fundur
Posted: 18. Jun 2009 04:16
by sigurjon
Er sumsé fundur 6. júlí? Hvar og hvenær?
Re: Næsti fundur
Posted: 18. Jun 2009 15:44
by Andri
Það á enn eftir að ákveða það sýnist mér, býður einhver sig fram til að halda þetta?
Ég og kærastan eigum heima í 50m^2 íbúð þannig að við getum ekki alveg haldið svona fund
Re: Næsti fundur
Posted: 19. Jun 2009 00:14
by Eyvindur
Ég verð að segja pass, þar sem ég er með einn tæplega tveggja mánaða á heimilinu og annan tæplega tveggja ára, og sé ekki í hendi mér að fjölmenn samkvæmi myndu gefast vel (auk þess sem plássið er takmarkað).
Re: Næsti fundur
Posted: 19. Jun 2009 00:20
by sigurjon
Hve margir ætli mæti? 10 manns?

Re: Næsti fundur
Posted: 19. Jun 2009 00:50
by Eyvindur
Það voru nær 20 síðast...

Re: Næsti fundur
Posted: 19. Jun 2009 15:56
by hallur
Hvaða kröfur þarf maður að uppfylla til að mega mæta?
Ég get alla vega ekki boðið fleirum en 4 heim í einu nema þá hleypa inn í hollum... við hjónin erum í 60 fermetrum ásamt dætrum okkar 9 og 11 ára og 2 köttum ásamt aragrúa af hljóðfærum, mixer með tilheyrandi statífa- og snúrufargani og tölvudrasli í nánast hverju horni.

Re: Næsti fundur
Posted: 19. Jun 2009 15:58
by sigurjon
...og væntanlega von á fleiri nú. Ég er hræddur um að litla kjallaraíbúðin sem ég leigi í miðbænum höndli það ekki.
Er nokkuð annað í boði (nema einhver búi í risaeinbýlishúsi) en að leigja sal undir herlegheitin?
Re: Næsti fundur
Posted: 19. Jun 2009 16:00
by hallur
sigurjon wrote:...og væntanlega von á fleiri nú. Ég er hræddur um að litla kjallaraíbúðin sem ég leigi í miðbænum höndli það ekki.
Er nokkuð annað í boði (nema einhver búi í risaeinbýlishúsi) en að leigja sal undir herlegheitin?
Getum við ekki boðið einhverjum Tortólamönnum í þetta svo hægt sé að halda fundi?
Re: Næsti fundur
Posted: 19. Jun 2009 17:00
by Eyvindur
Allir skráðir meðlimir í sjálfu félaginu (og þar með greiðendur félagsgjalda) mega mæta á reglubundna fundi.
Hjalti var að tala um að það væri lítið mál að fá iðnaðarhúsnæði til leigu í eitt og eitt kvöld fyrir slikk... Getur einhver kannað það?
Re: Næsti fundur
Posted: 19. Jun 2009 17:05
by hallur
Og hvar skráir maður sig í félagið og hver eru félagsgjöldin?
Re: Næsti fundur
Posted: 19. Jun 2009 19:34
by Eyvindur
Félagsgjöldin eru 4.000 krónur á ári, og það er hinn vaski gjaldkeri, Úlfar, sem sér um að taka við skráningum.
Re: Næsti fundur
Posted: 19. Jun 2009 21:19
by hallur
Það er nefnilega það... skyldi kappinn nokkuð búa hér niðri á Linnettstíg?
Re: Næsti fundur
Posted: 19. Jun 2009 22:48
by hallur
Ahh... fór í smá rannsóknarvinnu og hann býr sko nær mér en það... það munar bara 16 á okkur
Re: Næsti fundur
Posted: 19. Jun 2009 23:49
by Eyvindur
Nauj... Ert þú líka í Firðinum? En unaðslegt.
Re: Næsti fundur
Posted: 20. Jun 2009 12:33
by hallur
Já, það fer að verða grundvöllur fyrir Hafnarfjarðardeild...

Re: Næsti fundur
Posted: 20. Jun 2009 18:49
by sigurjon
...svona ekki ósvipað og geðdeild...

Re: Næsti fundur
Posted: 20. Jun 2009 19:25
by Eyvindur
Akkúrat, bara aðeins meiri bjór.
Re: Næsti fundur
Posted: 21. Jun 2009 01:55
by sigurjon
Nákvæmlega!

Re: Næsti fundur
Posted: 23. Jun 2009 14:46
by hallur
Nú, hvar sem fundur verður haldinn þá mæti ég og geng formlega í félagið.
Re: Næsti fundur
Posted: 28. Jun 2009 22:46
by bjorgvin
Ef það er nokkuð öruggt að 10-20 koma á mánudegi þá er möguleiki að hafa fundinn á bar sem er einungis að horfa á smá sölu á bjór, kringlukráin er t.d. með sal til hliðar sem er örugglega í engri notkun á mánudögum.
-Björgvin
Re: Næsti fundur
Posted: 28. Jun 2009 22:49
by Eyvindur
Hæpið samt að fá leyfi til að gera þetta á bar og koma með eigin veitingar.
Getur einhver spurst fyrir um afnot af auðu iðnaðarhúsnæði í eina kvöldstund? Ég er bæði vonlaus til allra verka í slíku, og hef auk þess engan tíma þessa dagana...