Sæl öll, eða sælir? Hef enn ekki rekist á neina konu hér á þessu spjalli.
Ég hef verið að kynna mér spjallið ykkar örlítið og ákvað að nú væri kominn tími til að kynna mig aðeins. Líka til þess að falast eftir góðum ráðum og reynslu
Mesti áhuginn minn liggur í víngerðinni, en ég læt karlinn eftir með bjórgerðina. Þar sem ég er forfallinn áhugakona um vínmenningu (og víndrykkju kannski líka ) þá hafði ég hugsað mér að gera dýrindis bláberja-, krækiberja- og allskonar ávaxtavín í framtíðinni..
Heimatilbúið er alltaf best, vonandi mun það líka eiga við um vín og bjór
Bestu kveðjur,
Embla