Page 1 of 1
210L suðutunna
Posted: 14. Mar 2011 14:28
by Bjórbræður
Mér áskotnaðist 210 L járntunna sem notuð er undir iðnaðarspíra. Hún er með einhverskonar matta áferð innan á sem virðist gegna því hlutverki að verja spírann gegn járninu. Hefur eitthver reynslu á því að nota og breyta tunnu af þessari stærð og gerð í suðutunnu?
Gælti ég átt í hættu á að fá eitthver óæskileg efni í bjórinn?
Re: 210L suðutunna
Posted: 14. Mar 2011 14:35
by kristfin
ertu viss um að hún sé úr járni, ekki ryðfrí? loðir segull við hana.
þetta er ansi stór tunna, en ef þið eruð að búa til mikið af bjór þá er bara laggó. ef hún er hinsvegar húðuð að innan, þá mundi ég ekki sjóða í hana því maður veit aldrei hvað það leysir úr læðingi. bara skrúfa helling af elementum í hana eða öfluga gasbrennara.
smelltu mynd inn af grippnum
Re: 210L suðutunna
Posted: 14. Mar 2011 15:37
by Bjórbræður
Er nokkuð viss um að þetta sé bara málað járn, það er rispa á hliðinni sem hefur ryðgað ofan í. Það er enginn segull á þessu eða neitt. Ég setti tvær myndir fyrir neðan þar sem matta áferðin sést innan á tunnunni.
IMG_2821 by
kjartang, on Flickr
IMG_2819 by
kjartang, on Flickr
Re: 210L suðutunna
Posted: 14. Mar 2011 17:23
by smar
Þetta er bara venjuleg járn tunna að ég held, tel að hún sé alls ekki heppileg til bjórgerðar.
Re: 210L suðutunna
Posted: 14. Mar 2011 17:50
by hrafnkell
Ég held að þetta sé ekki málið fyrir bjór

Re: 210L suðutunna
Posted: 14. Mar 2011 18:01
by Bjórbræður
Ok, takk fyir hjálpina. Ég redda mér bara tunnu úr plasti.
Re: 210L suðutunna
Posted: 14. Mar 2011 19:29
by kristfin
jikes.
ekki henda tunnunni samt. það er auðvelt að búa til gerjunar tank úr þeim. þeas nota tunnuna til að halda gerjunarfötu í vatnsbaði í réttum hita.
Re: 210L suðutunna
Posted: 15. Mar 2011 08:39
by anton
Var þessi tunna niður á austurvelli...
Já, sniðugt til að nota til að stýra gerjunarhitastigi.
Re: 210L suðutunna
Posted: 15. Mar 2011 12:28
by Bjórbræður
Ef einhver telur sig geta notað þessa gæðasmíð erum við meira en lítið til í að láta hana fyrir lítið! Ekki nema eina góða 60l suðutunnu með hitaelementum.

Getum reddað annarri nákvæmlega eins tunnu ef eftirspurn er mikil!
Re: 210L suðutunna
Posted: 17. Mar 2011 12:33
by halldor
Ef einhverjum áskotnast svona tunna úr ryðfríu stáli, þá er sá hinn sami í góðum málum. Ég var búinn að skoða þetta á sínum tíma til að búa til gerjunartank úr og verðið hljóp á tugum þúsunda.