Hér skal eingöngu skrá uppskriftir sem hafa verið prófaðar og gefið góða raun að mati bruggara, vina og/eða vandamanna. Nafn bjórstíls skal taka fram í titli þráðar. Dæmi: "Hvítur sloppur – Belgískur Hveitibjór"
Ég lét verða af því og pantaði mér hráefni í næsta bjórinn minn. Þetta verður tilraun númer 2 hjá mér og ég ætla að gera aftur tilraun við að brugga uppáhalds bjórstílinn minn, India Pale Ale.
Kornið
1,5 kg light dry malt extract
0.250 kg Crystal 40L
0.125 kg CaraAmber Weyermann 25L
Humlarnir
60 min 20 gr Chinook
15 min 20 gr Amarillo
5 min 10 gr Amarillo
Þurrhumla 20 gr Amarillo
Gerið
Wyeast - American Ale 1056 XL
Annað
10 gr Irish moss
Þetta ætti að gefa mér 10 lítra af bjór og eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir þá er þetta extract uppskrift en ég steep-a cara-crystal og cara-amber korninu til að fá lit, bragð og meiri fyllingu.
Ég er ekki alveg búinn að ákveða mig hvað ég ætla að nota mikið af korninu og ég held að ég komi til með að bæta aðeins við humlum. Samkvæmt hopville þá ætti þessi uppskrift að gefa mér um 60 IBU en þar sem að ég er humlahaus þá veit ég ekki hvort að ég stenst freistinguna á að bæta við meiri humlum.
Endilega látið mig vita hvað ykkur finnst um þessa uppskrift.
Persónulega myndi ég bæta Amarillo líka útí virtinn í flameout, þeas ef að maður ætti nóg nóg til af þeim Mér finnst það gefa margslungna, fyllri og flókna lykt að humla 5min, 0min og dryhop.
Sturlaugur Jón Björnsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús
Lítur vel út. Ameríski IPAinn minn var einmitt í kringum 60 IBU. Mjög ljúffengur, en ég hefði ekkert haft á móti því að hafa meira ...
Annars verð ég að vera með tittlingaskít... Er cara-crystal ekki tvítekning? Caramel malt og crystal malt er sitthvort orðið yfir sama hlutinn... Er þetta rugl hjá mér, eða?
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Cara er stytting á Caramel. Þannig er Carapils caramel útgáfa af pilsner malti, Caramunich af munich malti o.s.frv. Þetta eru allt bara vöruheiti yfir mismunandi gerðir af caramel malti, en caramel og crystal eru samheiti. Ég var bara að velta fyrir mér hvort eitthvað væri til sem heitir cara-crystal, eða hvort að það væri einhver smá ruglingur...
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Það er bæði rétt og rangt... CaraXXX eru vissulega vörumerki, en um leið eru þetta mismunandi afbrigði af caramel/crystal malti. Special B er til dæmis mjög dökkt crystal malt, en það er líka það sama og CaraAroma held ég... Bara mismunandi fyrirtæki.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Stulli, ég kaupi inn 100 gr af Chinook og 100 gr af Amarillo. Þannig að ég hef nóg afgangs og hver veit nema ég bæti töluvert af humlum við uppskriftina.
Varðandi caraXXX og crystal þá var ég ekki viss. Ég hef yfirleitt séð bara crystal 40L en á dönsku síðunni sem ég keypti vörurnar mínar, http://www.brygladen.dk, þá stóð cara-crystal. En þegar ég keypti það upprunalega þá hét það crystal 40L enda var það í USA, http://www.morebeer.com.
Þetta verður spennandi, djöfull er gaman að brugga bjór!
Caramel malt - framleitt í BNA
Crystal malt - framleitt í UK
CaraXXX - framleitt í Þýskalandi
Gróflega er þetta í rauninni allt framleitt með sömu aðferð, að "meskja" blautt (grænt) malt til þess að umbreyta sterkjunum og karamelísera þær síðan með því að rista og þurrka.
Sturlaugur Jón Björnsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús