Page 1 of 1
Vatnsmagn Í BIAB
Posted: 18. Feb 2011 23:07
by valurkris
Sælir BIAB bruggarar,
Hvað eruð þið að reikna með miklu magni af vatni sem að hvert Kg af korni drekkur í sig
Re: Vatnsmagn Í BIAB
Posted: 18. Feb 2011 23:34
by kristfin
ég pæli ekki í því.
ég nota bara beersmith, set upp uppskriftina, fer í preview brewsheet og sé hvað beersmith vill nota mikið vatn og nota það magn.
þegar þú ert búinn að gera þetta nokkrum sinnum færðu tilfinningu fyrir því hvort þú minnkar vatnið um 5-10%, þar sem það verður ekki eins mikið tap á vökva í korninu þar sem þú hengir pokann til þerris fyrir ofan fötuna þegar þú ert að ná upp suðunni.
Re: Vatnsmagn Í BIAB
Posted: 19. Feb 2011 01:22
by OliI
Ég setti rétt í þessu 33,5L af vatni og 5,6Kg af korni saman við það og endaði með 28L af vatni fyrir suðu eða ~1L pr Kg korn (hengdi pokann upp í smá stund til að láta síga úr honum). Ég hef nú bara rúllað þessu gegnum Beersmith samt án þess að leiða hugann sterklega að þessu. Finnst nú samt ég hafi heyrð að einhverjir séu kræfari í að kreista út dropana en þetta er amk stærðargráðan.
Re: Vatnsmagn Í BIAB
Posted: 19. Feb 2011 11:35
by sigurdur
Ég reikna alltaf með 0,9L per kíló af korni í vatnstap.
Það stenst yfirleitt.
Re: Vatnsmagn Í BIAB
Posted: 19. Feb 2011 11:35
by sigurdur
Ég reikna alltaf með 0,9L per kíló af korni í vatnstap.
Það stenst yfirleitt.
Re: Vatnsmagn Í BIAB
Posted: 19. Feb 2011 11:39
by valurkris
Takk fyrir svörin