Page 1 of 1

Maltvín/Barley Wine?

Posted: 29. May 2009 11:13
by nIceguy
Sælir piltungar, hvurnig er það, þykir það bjartsýni að hella sér út í bruggun barley wines? Erum við ekki að tala um einhverja ógurlega gerjunartíma uppá fleiri mánuði. Uss hefur einhver prófað þetta og þá hvernig var útkoman? Á einhver extrakt uppskrift sem hægt væri að breyta og "bæta" :)

KV

Freyr

Re: Maltvín/Barley Wine?

Posted: 29. May 2009 11:38
by Eyvindur
Held að það sé ekkert of mikil bjartsýni að gera byggvín. Mig hefur langað það lengi, og geri það örugglega þegar ég verð orðinn ögn ríkari af malti. En jú, þetta er ferli sem tekur lágmark 9 mánuði, og gerjunin krefst aðeins meiri nákvæmni, jafnvel tveimur gerviðbótum skilst mér. Það er samt ekkert til að hafa neinar brjálæðislegar áhyggjur af - þetta er aðallega meiri bið, en afraksturinn ætti að vera þess virði. Ég myndi kýla á það.

Ég mæli með http://www.beertools.com til að finna uppskriftir. Það er urmull af extract uppskriftum þar. Renndu bara yfir sem flestar og sjáðu hvað þér líst á...

Það eina sem ég myndi benda á er að það væri eflaust mjög óráðlegt að gera þetta öðruvísi en að sjóða allan virtinn í einu. Þegar þú ert með svona þéttan virti má lítið bera út af til að það fari að koma verulega niður á humlanýtingunni, get ég ímyndað mér... Reyndar gæti síðviðbót af extracti (25% í upphafi, rest í 15 mínútur) reddað því...

Re: Maltvín/Barley Wine?

Posted: 29. May 2009 11:51
by Stulli
Til þess að brugga byggvín þarf aðallega þolinmæði. Þú ættir ekkert að láta það stoppa þig. Sjálfur hef ég gert mikið af þéttum bjórum sem að eru yfir 8% þám Russian Imperial Stout, Tripel, Sterka Belgíska, en aldrei lagt í byggvín. Það er fátt skemmtilegra en að eiga sterka bjóra á flöskur og fylgjast með breytingum yfir tíma. Það er mjög verðlaunandi að vera þolinmóður ;)

En annars er ég sammála Eyvindi með að ef að þú ætlar að leggja í byggvín með extract, þá væri mesta vitið í því að sjóða allan virtinn, þeas ekki sjóða þétt og þynna svo út með vatni í gilkerinu.