Er alveg út í hött að nota bláa síldartunnu sem gerjunarílát?
Ég veit ókostina; ógegnsæ og staflast ekki, en er hægt að treysta að plastið gefi ekki frá sér óbragð þegar gerjað er í henni?
Við strákarnir erum að spá í 60 lítra tunnu sem fæst í BYKO.
Það ætti að vera í góðu lagi. Það er held ég sama efni í þeim og plasttunnunum sem þú færð í viðarsúlunni eða bruggbúðum, og þær eru ætlaðar fyrir matvæli. Byko föturnar eru reyndar rándýrar seinast þegar ég vissi og held ég nákvæmlega sama og þú færð í saltkaup.
kristfin wrote:það væri varla verið að salta síld og selja úr landi í baneitruðu plasti.
vitið þið hvað þær kosta í saltkaupum?
ég er annars alltaf að leita að 45-50 lítra fötu sem mundi passa fyrir 2 kúta
Hálftunna (60 l.) á 4.000 kr. í Saltkaupum. Eða voru það a. m. k. í haust. Man ekki hvað kvarttunnan kostaði (30 lítra), en það var mjög nálægt verðinu á 30 lítra fötunum sem seldar eru í Vínkjallaranum og Ámunni.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Það er verið að salta grásleppuhrogn í svona tunnum. Það eru viðkvæm matvæli, þannig að þessar tunnur hljóta að standast allar kröfur um matvælaöryggi.
Næst: Bock, Pilsner
Í Gerjun : Brett'd Dubbel, Orval, Flemish Red, Lambic Mk1
Á flösku : Dubbel, Amarillo Smash
Á kút : Rauchbier Märzen.
Takk fyrir þetta strákar.
Við látum á þetta reyna
Við vorum áður að nota 60 lítra fötur frá Sigurplasti en fengum lakkbragð í einn bjór sem við gerjuðum í henni og vorum fljótir að kenna tunnunni um (Illur ræðari kennir um árinni).
Reyndar gæti verið að granítið úr steinbier-num hafi rispað hana eitthvað, þar sem við secondary-uðum steinbierinn með steinunum í, til að ná öllum sykrinum af þeim.