Við strákarnir vorum að panta slatta af malti og eigum nóg af speciality malti sem við megum missa (þurftum að kaupa í heilum sekkjum). Maltið er frá Castle Malting í Belgíu og er glænýtt.
Mig grunaði að einhvern vantaði belgísku sérmöltin sem erfitt er að nálgast hérlendis, Special B, Belgian Aromatic og Biscuit. Við eigum líka flest annað malt ef menn vantar, t.d. Hveiti, Vienna, Melanoidin, Chocolate, Cara 20, 50 og 150. Við erum líka með tappa á frábæru verði.
Við erum alltaf til í að skoða skipti (ef þið eigið eitthvað sem okkur vantar) en í versta falli skiptum við að malti fyrir peninga.
Sendu PM ef þig vantar eitthvað.