Page 1 of 2
Nett dæla
Posted: 28. Nov 2010 21:29
by kalli
Hér er ódýr, lítil og létt dæla sem gæti verið heppileg sem meskidæla. Dælan er food-grade, þolir 120 gráður og það er eitthvað af heimabruggurum sem notar hana. Hún heitir SP20/20.
Hún keyrir á 12VDC sem þýðir að það þarf ekki að óttast raflost og að auðvelt er að stjórna hraðanum með því að lækka spennuna. Hún dælir 7 lítrum á mínútu sem þýðir að hún getur dælt öllum virtinum 12 sinnum gegnum kornið í 33 lítra meskingu. Það er lítið miðað við March en samt feikinóg.
Dælan kostar 28 GBP. Ef fleiri vilja panta, látið mig vita og ég reyni að fá tilboð.
Re: Nett dæla
Posted: 28. Nov 2010 21:58
by hrafnkell
Er þetta diaphragm dæla eða magnetic impeller?
Re: Nett dæla
Posted: 28. Nov 2010 22:28
by gunnarolis
Ef hún er magnetic coupled þá gæti ég verið til.
Re: Nett dæla
Posted: 29. Nov 2010 00:45
by atax1c
Hver er munurinn á þessu tvennu ?
Re: Nett dæla
Posted: 29. Nov 2010 09:25
by kristfin
ég er alltaf til í einhverja vitleysu. reiknaðu með mér ef þú ferð í dælu
Re: Nett dæla
Posted: 29. Nov 2010 09:26
by Idle
kristfin wrote:ég er alltaf til í einhverja vitleysu. reiknaðu með mér ef þú ferð í dælu
Ég elska vitleysu! Count me in!
Re: Nett dæla
Posted: 29. Nov 2010 10:10
by hrafnkell
Ég er til í að vera memm líka

Re: Nett dæla
Posted: 29. Nov 2010 13:16
by andrimar
Sama hér, skráðu mig niður fyrir einni.
Re: Nett dæla
Posted: 29. Nov 2010 13:51
by sigurdur
Er dælan matvælaörugg?
Re: Nett dæla
Posted: 29. Nov 2010 14:20
by Idle
sigurdur wrote:Er dælan matvælaörugg?
kalli wrote:Dælan er food-grade, þolir 120 gráður og það er eitthvað af heimabruggurum sem notar hana. Hún heitir SP20/20.
Svo virðist vera.
Nánari upplýsingar um dæluna hér.
Re: Nett dæla
Posted: 29. Nov 2010 15:59
by valurkris
Ég er til í eina
Re: Nett dæla
Posted: 29. Nov 2010 20:59
by Squinchy
Til í eina
Re: Nett dæla
Posted: 30. Nov 2010 23:27
by Bjarki
Hef áhuga.
Re: Nett dæla
Posted: 1. Dec 2010 22:19
by kalli
Þá eru komnir 7 áhugasamir.
Fyrirtækið er lokað til 16. des. Við sendum af stað pöntun rétt fyrir þann tíma.
Re: Nett dæla
Posted: 2. Dec 2010 00:12
by kristfin
eitt af því sem march dælurnar hafa, er að það er hægt að láta þær ganga þurrar og þær geta sogað til sín þó slangan næst dælunni sé tóm (lofttappi). haldið þið að þessi klári það?
Re: Nett dæla
Posted: 2. Dec 2010 00:39
by kalli
kristfin wrote:eitt af því sem march dælurnar hafa, er að það er hægt að láta þær ganga þurrar og þær geta sogað til sín þó slangan næst dælunni sé tóm (lofttappi). haldið þið að þessi klári það?
Ég held einmitt að March geti ekki gengið þurr. Dælan er ekki self-priming, sem þýðir að hún getur ekki sogið og verður að vera undir vökvanum sem á að dæla svo hann geti runnið til dælunnar undan þyngdaraflinu. Það má heldur ekki loka fyrir innflæðið á March, en það má loka fyrir útflæðið. Mér skilst að þetta sé almennt með magnetic-drive dælurnar.
Samkvæmt myndbandinu hjá Solar Project Shop getur SP20/20 dælan sogið upp og er því self-priming.
Re: Nett dæla
Posted: 15. Dec 2010 21:08
by kalli
Jæja, þá er að fara að panta. Ég sendi af stað pöntun fyrir eftirfarandi 9 aðila:
gunnarolis, kristfin, Idle, hrafnkell, andrimar, valurkris, squinchy, Bjarki og yðar einlægur.
Vilja fleiri vera memm eða dettur einhver út? Endilega látið vita hið fyrsta.
Re: Nett dæla
Posted: 16. Dec 2010 00:22
by kristfin
kalli wrote:Jæja, þá er að fara að panta. Ég sendi af stað pöntun fyrir eftirfarandi 9 aðila:
gunnarolis, kristfin, Idle, hrafnkell, andrimar, valurkris, squinchy, Bjarki og yðar einlægur.
Vilja fleiri vera memm eða dettur einhver út? Endilega látið vita hið fyrsta.
eg er dottinn út. er að legga drög að stærri dælu.
Re: Nett dæla
Posted: 16. Dec 2010 09:20
by gunnarolis
Ég held að þessi dæla sé ekki nógu öflug fyrir mig, síðan fékk ég aldrei svar við því hvort hún væri magnetic coupled...sem ég held hún sé ekki.
Þú mátt taka mig af listanum.
Re: Nett dæla
Posted: 17. Dec 2010 18:02
by kalli
Þá er búið að panta dælur fyrir 7 manns, Idle, hrafnkel, andrimar, valurkris, squinchy, Bjarka og yðar einlægan.
Re: Nett dæla
Posted: 17. Dec 2010 19:35
by hrafnkell
Hvað koma þær til með að enda í? Hvað er sendingarkostnaðurinn og svona?
Re: Nett dæla
Posted: 17. Dec 2010 20:07
by kalli
Já, auðvitað. Þetta fékk ég frá PayPal:
Description Unit price Qty Amount
solarproject 182.00 GBP 1 182.00 GBP
Subtotal 182.00 GBP
Shipping and handling 11.45 GBP
Total £193.45 GBP
Payment £193.45 GBP
Þetta eru þá £27,64 á mann á PayPal gengi + aðflutningsgjöld
Re: Nett dæla
Posted: 20. Dec 2010 12:37
by kalli
Dælurnar eru í pósti. Sjá:
12 Volt Pumps
Thank you for your order and payment, I have posted the pumps out by AirMail post today.
The inlet is at the end of the pump, with the outlet being the vertical port. It is best to leave the pump with the exit being vertical as this encourages any air to vent the pump chamber naturally. If sound is an issue, rubber pipes and mounting onto a soft surface will prevent the vibration being conducted to the fabric of the building in a 'sound board' effect.
If you plan to use this pump with a solar water panel I recommend that, where practical, it is connected on the much cooler "inlet" side of the panel to avoid exposing the pump to unnecessary excessive heat. I have tested these personally with boiling water of 100 deg C and they are designed and rated to operate to 120 C, though minimising the operating temperature will give greater product life.
Some people like to power the pump from a Photovoltaic panel, in which case the manufacturers advise that you ensure your PV panel does not exceed the 14 volts maximum rating for these pumps as this could theoretically damage the control electronics within the pump body. Having said that, I have not seen one damaged in this way in my own prolonged tests with a PV panel generating up to 17V in bright sunlight. Similarly, they do run successfully at voltages lower than the stated 9V if you wish to use voltage to reduce flow rates.
Please don't hesitate to contact me if you have any queries or concerns about the unit. I hope you like the product and that it meets your needs.
Peter
Re: Nett dæla
Posted: 22. Dec 2010 01:16
by Squinchy
Snilld

Re: Nett dæla
Posted: 22. Dec 2010 01:24
by sigurdur
Þetta er flott.
Það yrði áhugavert ef einhver tæki það að sér að búa til myndband af dælunni í notkun fyrir aðra.
