Page 1 of 1
Örgerð í smíðum.
Posted: 3. Nov 2010 22:18
by smar
Góðan daginn hér.
Jæja þá er ég kominn á fullt að útbúa mér græjur svo að bjór verði úr korninu sem ég næ í á morgun
Ég er með svona plasttunnu sem suðupott með hraðsuðukatlaelementum, hef ekki prufað að stinga þessu í samband ennþá, en þetta eru 3. element hvert er 2200w þannig að mig grunar að ég verði að deila þessu niður á 2 rafmagnsöryggi ?? ( veit einher eitthvað um það )
Annað sem ég gæti séð sem vandamál með þessum litlu elementum er að brunabragð gæti komið í virtin.
Mér datt í hug til að komast fyrir það að setja ryðfría plötu undir elementin (fest við elementið) og þar með stækka hitaflötinn...........veit einhver hvort það grilli elementin ???
Suðutunna.

- DSC00687.JPG (33.88 KiB) Viewed 26271 times
Hér er "Mash tun manifold" sem ég smíðaði.
Ég er ALLS enginn sérfræðingur en mér datt í hug að betra væri að smíða það þannig að hægt sé að ná þessu í sundur til að auðvelda þrif.

- DSC00684.JPG (74.04 KiB) Viewed 26271 times

- DSC00685.JPG (64.4 KiB) Viewed 26271 times
Endilega commentið á þetta þar sem ég er græningi í þessu

Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 3. Nov 2010 22:34
by sigurdur
Þetta er flott hjá þér.
Ég myndi setja elementin á 1x 16A öryggi eða 2x 10A öryggi (þá slær ekki út ef það er eitthvað annað í sömu grein).
Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af brunabragði með elementunum.
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 3. Nov 2010 23:08
by hrafnkell
1x 16A öryggi dugar bara fyrir 2 element, þú þarft amk 8A per element.
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 3. Nov 2010 23:12
by sigurdur
Auli ég .. ég var að hugsa um mínar græjur .. ójæja.
Það er rétt hjá Hrafnkeli, 8A per element er lágmark.
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 9. Nov 2010 18:12
by Stebbi
Með öll elementin í gangi þá þurfa þau 28A að því gefnu að þau séu í raun 2200w. Svo er margt annað sem spilar inní en þetta ætti að geta hangið á einu 16A öryggi og einu 10A en ef það gerir það ekki þá dugar að hafa 10A per element. Rafmagnsfræðin segir að hvert element taki 9.4A miðað við 234V sem er algengasta spenna sem mælist.
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 9. Nov 2010 19:06
by hrafnkell
Elementin eru um 26.2 Ohm sem þýðir að á 234v er straumurinn I = 234 / 26.2 = 8.93A (8.93 * 3 = 26.79A)
2200 / 240 = 9.16A á 240v
R = 240 / 9.16 = 26.2
Ég hef (og geri enn) keyrt 2stk svona element á 16A öryggi án vandræða, það ætti að vera lítið mál að keyra 3stk á 24A öryggi, en stærra er öruggara. Athugaðu líka að það eru ekki allar klær sem þola svona mikinn straum, flestar klær, fjöltengi og innstungur eru gerð fyrir 16A þannig að ekki setja allt á eina kló þó öryggið á bakvið sé nógu stórt

Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 9. Nov 2010 20:08
by kalli
hrafnkell wrote:Elementin eru um 26.2 Ohm sem þýðir að á 234v er straumurinn I = 234 / 26.2 = 8.93A (8.93 * 3 = 26.79A)
2200 / 240 = 9.16A á 240v
R = 240 / 9.16 = 26.2
Ég hef (og geri enn) keyrt 2stk svona element á 16A öryggi án vandræða, það ætti að vera lítið mál að keyra 3stk á 24A öryggi, en stærra er öruggara. Athugaðu líka að það eru ekki allar klær sem þola svona mikinn straum, flestar klær, fjöltengi og innstungur eru gerð fyrir 16A þannig að ekki setja allt á eina kló þó öryggið á bakvið sé nógu stórt

Viðnámið í hitöldunum breytist með hita. Hjá mér þá gengur að keyra 3 hitöld á sama 24A örygginu þar til hitinn er kominn upp í 50-60 gráður. Eftir það þá slær öryggið út. Ég nota nú aðeins 2 af hitöldunum og það þriðja er til vara. Það fer illa með öryggin að slá oft út.
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 9. Nov 2010 20:16
by smar
Set þetta þá á 2 öryggi 16 og 10a.
Hvað eruð þið með mörg element í gangi eftir að suða kemur upp í virtinum ?
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 9. Nov 2010 20:31
by hrafnkell
smar wrote:Set þetta þá á 2 öryggi 16 og 10a.
Hvað eruð þið með mörg element í gangi eftir að suða kemur upp í virtinum ?
Það fer eftir því hvað maður er með mikinn bjór og hitastigi þar sem bruggað er

1 element per 20-30 lítra dugar venjulega til að halda suðu
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 2. Feb 2011 20:02
by smar
Fékk mér loksins kælingu fyrir virtin.
Var að velta fyrir mér hvort það væri eitthvað vesen með þrif á þessum kælum.
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 2. Feb 2011 20:12
by gunnarolis
Mér þætti gaman að fá að vita hversu mikið menn þurftu að hósta upp fyrir svona chiller, hvar þú fékkst hann og eins með manifoldið. Hveru mikið það kostaði og hvar það er fengið?
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 2. Feb 2011 20:29
by smar
Manifoldið smíðaði ég sjálfur og held að svona kælir kosti um 25þús, en ég fékk einhvern afslátt af þessu

Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 2. Feb 2011 20:50
by anton
Eina sem ég hef lesið varðandi þrif á svona varmaskiptum er með bjórinn, þá er algjört must að halda öllum ögnum frá svo þetta stíflist ekki. Ekki keyra humlasull eða neitt svoleiðis í gegnum þetta. Þeir sem eru með varmaskipta heimahjásér á neysluvatni eða öðru geta lent í svipuðu veseni með stíflur ef einhvað rusl er'i vantinu. Þá er maður eiginlega svolítið fucket held ég.
En annars er það bara að keyra heitt vatn í gegn! Svo keyra sjóðandi virtinn í gegn aðeins áður en þú kveikir ákælingu til að sótthreinsa...
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 2. Feb 2011 21:55
by hrafnkell
Það á ekkert að vera stórmál, en þú verður líklega að vera með poka fyrir humlana, annars stíflast allt og tómt vesen að þrífa.
Hvar fékkstu þennan?
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 2. Feb 2011 22:13
by smar
Fékk hann í Byko, þetta er forhitari ætlaður fyrir gólf.
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 2. Feb 2011 22:19
by hrafnkell
smar wrote:Fékk hann í Byko, þetta er forhitari ætlaður fyrir gólf.
Hvað kostaði?
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 2. Feb 2011 22:35
by gunnarolis
Já þú varst búinn að segjast hafa smíðað það sjálfur, en hvar fékkstu efnið og svona? Og hvað sirka kostaði hráefnið?
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 2. Feb 2011 22:39
by smar
Efnið í manifoldið fékk ég hjá blikkara sem ég þekki, það var 0 kr.
En þú færð þetta í Vörukaupum held ég.
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 5. Feb 2011 23:58
by smar
Var nú rétt í þessu að prufa coolerinn, þetta er nánast overkill

með virtin rennandi á fullu mátti ég bara rétt láta kalda vatnið í hann seitla til að enda í 20 gráðum.
Þetta svín virkar og mæli með þessum kæli.
Re: Örgerð í smíðum.
Posted: 6. Feb 2011 09:30
by hrafnkell
smar wrote:Var nú rétt í þessu að prufa coolerinn, þetta er nánast overkill

með virtin rennandi á fullu mátti ég bara rétt láta kalda vatnið í hann seitla til að enda í 20 gráðum.
Þetta svín virkar og mæli með þessum kæli.
Nú er ég enn forvitnari.. Hvað kostaði hann?
