Centennial "SMASH" (Extract)
Posted: 28. Oct 2010 21:02
Well, skiljanlega ekki hreinræktaður SMASH þar sem extractið sem ég nota (Briess Golden Light DME) er víst aðeins CaraPils-bætt (og lýsingin segir að auki bara "Base Malt", gæti jafnvel verið að það séu fleiri en ein tegund af pale malti í gangi?), en eins nálægt því og ég kemst m.v. efni og aðstæður. 2-3 pælingar á bakvið þessa lögn, langaði aðeins að stíga eitt augnablik aftur í einfaldleikann eftir að hafa verið að hækka flækjustigið með hverju bruggi undanfarið, og sömuleiðis langaði mig að sjá "núllpunktinn" í lit og áferð, þ.e. hvernig undirstaðan er áður en ég fer að "kjöta" ölið upp með sérmalti. Svo tókst mér líka að koma heim úr fótbolta á mánudaginn með lemstraðan vinstri únlið, svo ég hefði sennilega ekki meikað að hamast á grjóthörðu carapils með kökukefli mjög lengi hvorteðer, en ég var svo sem búinn að plana þetta fyrir þann tíma, en það varð endanlega til að halda mér frá því að freistast til að bæta út í smá karamellumalti 
Getur sennilega varla verið einfaldara, extraktið kemur í 3ja punda pokum, og það eru tveir svoleiðis (einn í upphafi, einn late addition), og humlarnir í únsupokum og það eru tveir slíkir, einn í upphafi suðu og annar við "flameout". Enginn afgangur, engin vigtun, ekkert vesen.
Enginn miði eða nafn enn, ef svo verður. Fer kannski eftir því hve vel heppnuð tilraunin verður, hvort þetta er eitthvað sem maður á eftir koma í róteringuna eða hvort þetta er bara stundargaman. Verður pottþétt vel drekkanlegur bjór, og nánast örugglega betri en fyrstu tvær tilraunirnar mínar 
Getur sennilega varla verið einfaldara, extraktið kemur í 3ja punda pokum, og það eru tveir svoleiðis (einn í upphafi, einn late addition), og humlarnir í únsupokum og það eru tveir slíkir, einn í upphafi suðu og annar við "flameout". Enginn afgangur, engin vigtun, ekkert vesen.
Code: Select all
Centennial "Smash" - American Pale Ale
================================================================================
Batch Size: 20.000 L
Boil Size: 11.000 L
Boil Time: 1.000 hr
Efficiency: 70%
OG: 1.051
FG: 1.010
ABV: 5.3%
Bitterness: 30.5 IBUs (Tinseth)
Color: 7 SRM (Morey)
Fermentables
================================================================================
Name Type Amount Mashed Late Yield Color
Light Dry Extract Dry Extract 1.361 kg No Yes 97% 8 L
Light Dry Extract Dry Extract 1.361 kg No No 97% 8 L
Total grain: 2.722 kg
Hops
================================================================================
Name Alpha Amount Use Time Form IBU
Centennial 9.2% 28.349 g Boil 1.000 hr Pellet 30.5
Centennial 9.2% 28.349 g Aroma 0.000 s Pellet 0.0
Misc
================================================================================
Name Type Use Amount Time
Irish Moss Fining Boil 5.000 mL 15.000 min
Yeast
================================================================================
Name Type Form Amount Stage
Safale S-05 Ale Dry 11.000 g Primary