Page 1 of 1

"Bilað" Danstar Nottingham ger

Posted: 20. Oct 2010 01:06
by sigurdur
Ég setti í lögn fyrir rúmum 96 tímum og hef ekki fengið neitt líf í virtinn.
Ég ætlaði að vökva nýjan pakka af Danstar Nottingham og tók eftir gati á hliðinni á pokanum.

Ég keypti þetta ger frá Morebeer í sumar.
Lot 1087117102, exp date 06-2011.

Myndir hér
http://s810.photobucket.com/albums/zz23 ... 0packages/" onclick="window.open(this.href);return false;

Ég sendi Danstar tölvupóst og er að bíða eftir svari frá þeim.

Ef þið keyptuð Nottingham í sumar, endilega kíkið á pokana ykkar ef þið eigið einhverja eftir.

Re: "Bilað" Danstar Nottingham ger

Posted: 20. Oct 2010 08:49
by gunnarolis
Tékkaðu á homebrewtalk. Ég man eftir þessari umræðu þar fyrr í sumar.

Re: "Bilað" Danstar Nottingham ger

Posted: 20. Oct 2010 09:04
by sigurdur
Ég var búinn að því, og póstaði nýju lot númeri fyrir þá.
Ég vildi bara vara alla við á klakanum sem fylgjast ekki með öðrum spjallborðum. :)

Re: "Bilað" Danstar Nottingham ger

Posted: 20. Oct 2010 10:05
by hrafnkell
Pakkarnir sem ég er með virðast vera í lagi.

Re: "Bilað" Danstar Nottingham ger

Posted: 20. Oct 2010 10:15
by sigurdur
hrafnkell wrote:Pakkarnir sem ég er með virðast vera í lagi.
Frábært!
Þá kaupi ég vonandi mjög bráðlega nokkra pakka.

Re: "Bilað" Danstar Nottingham ger

Posted: 20. Oct 2010 11:40
by hrafnkell
Ég myndi gera það fyrr en seinna, það eru bara 8 pakkar eftir af nottingham. Nóg af öllu öðru :)

Re: "Bilað" Danstar Nottingham ger

Posted: 20. Oct 2010 17:15
by kristfin
ég fékk svona pakka. tók mynd af pakkanum, sendi þeim póst og fékk nýja senda um hæl

Re: "Bilað" Danstar Nottingham ger

Posted: 20. Oct 2010 23:53
by halldor
sigurdur wrote:Ég setti í lögn fyrir rúmum 96 tímum og hef ekki fengið neitt líf í virtinn.
Ég ætlaði að vökva nýjan pakka af Danstar Nottingham og tók eftir gati á hliðinni á pokanum.

Ég keypti þetta ger frá Morebeer í sumar.
Lot 1087117102, exp date 06-2011.

Myndir hér
http://s810.photobucket.com/albums/zz23 ... 0packages/" onclick="window.open(this.href);return false;

Ég sendi Danstar tölvupóst og er að bíða eftir svari frá þeim.

Ef þið keyptuð Nottingham í sumar, endilega kíkið á pokana ykkar ef þið eigið einhverja eftir.
Við gerjuðum jólabjórinn okkar með Nottingham sem við keyptum í sumar og hann fór úr 1075 niður í 1026 á 14 dögum en ég bjóst við honum í kringum 1020 ég ætla að gefa þessu smá séns og sjá hvort ávextirnir sem við settum í secondary nái að kick starta gerinu.

Ég tékka á númerinu á pökkunum okkar ef ég hef ekki hent þeim.

Re: "Bilað" Danstar Nottingham ger

Posted: 21. Oct 2010 00:24
by sigurdur
Vandamálið með mitt ger var ekki það að það gerjaði ekki að fullu heldur að það gerði nákvæmnlega ekki neitt í 96 klst.
Ég kíkti ofan í tunnuna og það sást ekkert líf.

Núna eru tæpir 24 tímar frá því að ég henti hinum pakkanum ofan í og það er komið líf á fullt í bjórinn.. :)

Re: "Bilað" Danstar Nottingham ger

Posted: 22. Oct 2010 15:45
by Oli
halldor wrote: Við gerjuðum jólabjórinn okkar með Nottingham sem við keyptum í sumar og hann fór úr 1075 niður í 1026 á 14 dögum en ég bjóst við honum í kringum 1020 ég ætla að gefa þessu smá séns og sjá hvort ávextirnir sem við settum í secondary nái að kick starta gerinu.
Er þetta ekki frekar spurning um of lítið súrefni í virtinum við gerjun en "bilað" ger? ;)

Re: "Bilað" Danstar Nottingham ger

Posted: 22. Oct 2010 19:44
by kristfin
hjá mér er nottingham fljótt að byrja, kannski 6-12 tímar, en það getur tekið langan tíma að klára