Jæja,
ég ætla að reyna að búa mér til parmessan ost og fara að mestu eftir
uppskriftinni í þessari bók en bæta við lipase ensími við.
Mig vantar því thermophilic gerla, lipase og hleypi. Hleypi fæ ég í búrinu
en hitt verð ég víst að panta mér af netinu, er það ekki?
Hvaðan er gott að panta svona lagað?
Eru einhverjar reglur um innflutning á svona löguðu sem maður þarf að hafa í huga?
Kveðja,
Jakob S.
p.s. Ef þið hafið þið búið til parmessan, endilega komið með góð ráð?