Page 1 of 1
Alkohol tafla
Posted: 28. Jul 2010 23:22
by raggi
Sælir.
Veit einhver hvar eða hvort hægt sé að nálgast einhversskonar töflu yfir alkohol.
Þannig er mál með vexti að ég ætla mér að búa til berjavín í haust og FG þarf að enda í ákveðni tölu t.d 1010, upp á bragðið að gera. Þá þyrfti ég að vita hvað OG yrði að vera í upphafi til að ná ákveðnri áfengis %.
Stærðfræði er ekki mín sterkasta hlið. X og Y eru eins og kínverska í mínum huga.
Kveðja
Raggi
Re: Alkohol tafla
Posted: 28. Jul 2010 23:50
by sigurdur
Jæja, samkvæmt
http://www.realbeer.com/spencer/attenuation.html" onclick="window.open(this.href);return false; þá má fá út eftirfarandi formúlu fyrir ABV ef maður veit OG og FG.
A = (OG - FG) * 1000 / 7.5
Ef maður umritar þessa formúlu miðað við þínar forsendur (í glasi) þá fær maður eftirfarandi formúlu:
A * 7.5 = (OG - FG) * 1000
A * 7.5 = 1000 * OG - 1000 * FG
A * 7.5 + 1000 * FG = 1000 * OG
(A * 7.5 + 1000 * FG) / 1000 = OG
Ég tel að þetta sé nokkuð nálægt til að fá OG.
Re: Alkohol tafla
Posted: 29. Jul 2010 00:03
by Idle
Svo má finna aragrúa reiknivéla á netinu, til dæmis þessa:
http://www.brewersfriend.com/abv-calculator/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Alkohol tafla
Posted: 29. Jul 2010 00:16
by raggi
Takk kærlega fyrir svörin. Einmitt það sem mig vantaði.
KV
Raggi
Re: Alkohol tafla
Posted: 3. Aug 2010 10:04
by Andri
Ætlarðu að stoppa gerjunina þegar FG-ið er í t.d. 1.010 eða ætlarðu að láta þetta stoppa af sjálfu sér?
Berjavín eiga það nefninlega til að gerjast dálítið þurr er það ekki? Semsagt fyrir neðan 1.000.
Re: Alkohol tafla
Posted: 11. Aug 2010 10:17
by raggi
Jú það var hugmyndin að stoppa gerjun við t.d 1010. Þau berjavín sem ég hef gert hafa orðið mjög þurr, þannig að ég hef þurft að sæta þau eftir á.