Page 1 of 1

Ræktun á gerlum.

Posted: 8. Jul 2010 16:28
by steinar
Sælir

Fékk í gær sérstök tilraunaglös til þess að rækta gerla í. Tapparnir eru t.d með 2 stillingum eftir því hvort ég vilji rækta loftháð eða óloftháð. Allavega í augnablikinu þá er planið að "rækta" upp gerlanna í tilraunaglösunum með þau stillt þannig að þeir geti losað co2 út að vild og frysta þá svo í glycerine lausn. Allt þetta sótthreinsa ég í joðórfór.

Allavega þá var ég að velta því fyrir mér hvort einhver viti hvort gerlarnir verði latir af malt extract. Og svo hvenær haldiði að besti tímapunkturinn til að frysta væri. Má ekki staðfastlega gera ráð fyrir að styrkleiki þeirra sé hæðstur þegar næring er mest (þeas eftir að þeir hafa gírað sig upp fyrir partíið). Allavega þá er planið að krassa partíið og frysta þegar það stendur yfir sem hæðst :roll:

Re: Ræktun á gerlum.

Posted: 9. Jul 2010 22:50
by kristfin
googlaðu yeast slanting og þessháttar.

ég hefi ekki verið að frysta, ég hefi verið að "slanta" og það er ekkert mál. ef þú eignast einvher skemmtileg ger ´þá máttu láta mig vita. alltaf í stuði fyrir skemmtilegt ger

Re: Ræktun á gerlum.

Posted: 22. Jul 2010 23:59
by Bjarki
Á til sýnishorn af þessu geri:
http://www.brewuk.co.uk/store/index.php ... re=default" onclick="window.open(this.href);return false;
Láttu mig vita ef þú hefur áhuga.

Re: Ræktun á gerlum.

Posted: 23. Jul 2010 11:37
by kristfin
hvenær ætlaðu að nota það. ég hefði áhuga á að fa sýni